Sól Hansdóttir fatahönnuður kemur fram á DesignTalks 2027

Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir er meðal fyrirlesara sem koma fram á DesignTalks 2027 sem fer fram í Hörpu þann 7. apríl næstkomandi. Sól hefur vakið athygli fyrir frumlega og listræna nálgun sína á fatahönnun þar sem mörk tísku, sviðslista og myndlistar renna saman.
Sól útskrifaðist með hæstu einkunn úr meistaranámi í fatahönnun frá Central Saint Martins í London árið 2021. Síðan þá hefur hún skapað sér sérstöðu með fjölbreyttum verkefnum á mörkum tísku og lista, meðal annars í samstarfi við tónlistarfólk, listamenn og leikhús, auk þess að hanna fyrir umfangsmiklar sviðsuppfærslur.
Nýjasta fatalína hennar, Everything Can Exist, var frumsýnd á tískuvikunni í London í september 2026 og hlaut afar góðar viðtökur. Fjallað var sérstaklega um línuna í Vogue Business, einum áhrifamesta miðli tískuiðnaðarins.
Á DesignTalks mun Sól veita innsýn í skapandi heim sinn þar sem tilraunagleði, listræn sýn og óhefðbundin nálgun á fatahönnun fá að njóta sín.






Nældu þér í miða á mun betra verði í forsölunni sem er nú þegar farin af stað á tix.is.
Forsala: 19.900 ISK
Fullt verð: 23.900 ISK
Listrænt teymi dagskrá DesignTalks skipa Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton, Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín, Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU, Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands og Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi.
Þemað í ár er INNSÝN
Þema HönnunarMars 2027 er INNSÝN og verður sjónum beint að því sem liggur að baki sköpuninni. Hugmyndum, rannsóknum, tilraunum og þeim fjölbreyttu ferlum sem leiða til nýrra lausna. Á DesignTalks verður kafað ofan í heim hönnunar og arkitektúrs, ólíkar nálganir og hugmyndir sem ögra viðteknum hugmyndum og opna nýjar dyr.
DesignTalks hefur fest sig í sessi sem einn af lykilviðburðum HönnunarMars og mikilvægur vettvangur innblásturs, samtals og nýrra hugmynda. Ráðstefnan hefur farið fram fyrir fullu húsi undanfarin ár og boðið gestum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim og sköpunarferli fólks sem mótar samtímann og framtíðina með verkum sínum.
Viðburðurinn fer fram á ensku.