Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Þjóðminjasafn, Náttúruminjasafn og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur leita að hönnuðum til að hanna og útfæra sýningu um Ferðabók Eggerts og Bjarna

15. nóvember 2026

Þjóðminjasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, leita að hönnunarteymi til að hanna sýningu í Nesstofu á Seltjarnarnesi um Ferðabók Eggerts og Bjarna. Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er fyrsta ítarlega og vísindalega lýsingin á Íslandi. Þeir félagar ferðuðust um landið árin 1752–1757 að tilstuðlan Konunglega danska vísindafélagsins. Bókin kom fyrst út á dönsku árið 1772 en var þýdd á íslensku árið 1943.


Almennt um sýninguna

Sýningin er hugsuð fyrir börn og fullorðna, með sérstaka áherslu á skólahópa á öllum skólastigum. Hún á að standa í 5 ár með möguleika á framlengingu. Sýningin á að vera áhrifarík, fræðandi og bjóða upp á fjölbreytta upplifun um Ferðabók Eggerts og Bjarna þar sem mismunandi skynfæri eru örvuð, með hæfilegri blöndu af safngripum og tækni. Gert er ráð fyrir stafrænni miðlun, blöndu margmiðlunar og grafískrar hönnunar, með gagnvirkri þátttöku gesta. Sýningin verður sett upp í Nesstofu á Seltjarnarnesi og verður í öllu húsinu en einnig eru möguleikar á að hafa að hluta sýningarinnar utanhúss í næsta nágrenni byggingarinnar. Nesstofa er friðað hús og þarf öll hönnun að taka mið af því og flæði gesta um rýmið. Teikningar Nesstofu eru með málsetningu til viðmiðunar. 


Teymið

Valferlið er opið öllum hönnuðum og arkitektum og hvatt er til þverfaglegs samstarfs milli ólíkra greina. Æskilegt er að í teymi séu aðilar sem búa yfir þekkingu og reynslu af sýningarhönnun, grafískri hönnun, margmiðlunarhönnun, tæknihönnun og lýsingarhönnun. Kostur er að hafa reynslu af miðlun til ólíkra hópa, með tilliti til aðgengis og reynslu af því að miðla til barna og ungmenna.

Framkvæmd

Valferli án tillagna tryggir að verkkaupi og teymi geti átt í nánu samtali og samstarfi og geti skipst á skoðunum um verkefnið, hugmyndir og markmið áður og á meðan vinna við sýninguna fer fram. Valnefnd fer yfir umsóknir og velur 3-5 aðila úr innsendum umsóknum og boðar til fundar með þeim til að ræða mögulegt samstarf. Þar gefst aðilum frekara tækifæri til að kynna hönnunarteymið, aðferðafræði, fyrri verk og eiga samtal um verkefnið. Einn samstarfsaðili verður valinn í kjölfarið til að vinna verkið. Gert er ráð fyrir að teymið geti hafið störf strax en stefnt er að því að sýningin verði opnuð í Nesstofu síðla árs 2027. 


Tímalína 

  • 16. nóvember 2026 - valferli auglýst
  • 7. janúar 2026 - skilafrestur umsókna kl. 12:00 að hádegi (GMT)
  • 11.-15. janúar 2027 - vinna valnefndar
  • 18. janúar - viðtöl við teymi
  • 20. janúar - niðurstaða kynnt. Í kjölfarið er samið við teymi og vinna hefst.

Valnefnd 

  • Thomas Lyngby, sýningarstjóri Nesstofu, fulltrúi verkkaupa 
  • Rannveig Magnúsdóttir, sérfræðingur á Náttúruminjasafni, fulltrúi verkkaupa
  • Karólína Stefánsdóttir, sýningarstjóri Þjóðminjasafnsins, fulltrúi verkkaupa
  • Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, fulltrúi MH&A
  • Kristján Örn Kjartansson, arkitekt, fulltrúi MH&A

Umsókn

Áhugasamir skulu senda inn umsókn, að hámarki fjórar A4-blaðsíður, þar sem fram koma upplýsingar um teymið, fyrri verkefni, menntun, verkefnastjórnun, nálgun og hugmyndafræði sem teymið sér fyrir að leggja upp með í verkefninu og tímaverð. Ekki er ætlast til að sýndar séu tillögur eða hugmyndir að lausnum í umsókninni. Einnig  er farið fram á að ferilskrá hvers og eins í teyminu fylgi með umsókninni. 

Umsóknir skal senda á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is fyrir kl.12:00 að hádegi (GMT) mánudaginn 7. janúar 2027, merkt Ferðabók + heiti teymis.

Áætlaður heildarkostnaður við hönnun, tæki, búnað og uppsetningu sýningarinnar er 35 milljónir króna með virðisaukaskatti. 

Nánari upplýsingar um Nesstofu og endurgerð hússins.

Grunnmynd 1

Grunnmynd 2

Teikningar af rýminu sem sýningin á að vera í, málsetningar eru til viðmiðunar.
Teikningar af rýminu sem sýningin á að vera í, málsetningar eru til viðmiðunar.

Aukaefni frá verkkaupa

Upplýsingar um Ferðabók Eggerts og Bjarna 

Í Nesstofu á Seltjarnarnesi á að setja upp sýningu um rannsóknarleiðangra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar á Íslandi á árunum 1752–1757, en afrakstur rannsókna þeirra birtist í stórvirkinu Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar (fyrst útgefin í Sorø í Danmörku 1772). Í Nesstofu var áður fyrr embættisbústaður landlæknis og fjallar sýningin einnig um það hlutverk. Sýningin verður ferðalag til 18. aldar á upplýsingartímanum, þegar nýjar uppgötvanir og vísindaaðferðir voru að ryðja sér til rúms.

Hugmyndin að  sýningunni er hugsuð sem heimsókn til Bjarna landlæknis. Um leið er fjallað um ferðalagið og samhengi þess, ásamt menntun og lífshlaupi Eggerts og Bjarna, Ísland á 18. öld og stöðu landsins innan danska ríkisins, upplýsingaöldina, vísindalegar rannsóknaraðferðir og sögu íslenskra lækninga. Jafnframt er vikið að sögu Nesstofu og mikilvægi hússins í íslenskri byggingarsögu.

Sýningin á að miðla þeirri einstöku innsýn sem leiðangurinn og Ferðabókin veita í náttúru og menningu Íslands um miðja 18. öld. Náttúrufyrirbæri, steintegundir, dýr og plöntur voru rannsökuð af kostgæfni og flokkuð með aðferðum sem voru nýjar og nútímalegar á þeim tíma. Jafnframt voru lifnaðarhættir almennings, húsakostur, klæðnaður, kynjahlutverk og fjölmargir aðrir þættir daglegs lífs skráðir og lýst.

Gestir eru færðir nær samtíma Eggerts og Bjarna með fjölbreyttum aðferðum, með gagnvirkum og upplifunarmiðuðum stafrænum miðlum. Sýn okkar samtímafólks á íslenska náttúru og menningu, loftslagsbreytingar og útdauðar tegundir er sett í samhengi við aðstæður á 18. öld.


Almennt um verkkaupa
Þjóðminjasafn Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands standa fyrir sýningunni í samvinnu við Náttúruminjasafn Íslands. Sýningin er styrkt af íslenskum stjórnvöldum og A.P. Møller sjóðnum í Danmörku.

Sýningin er afrakstur átaksverkefnis íslenskra stjórnvalda, sem hrint var af stað vorið 2019 í tilefni 75 ára afmælis lýðveldisins og var ætlað að efla vísindasamvinnu Dana og Íslendinga. 

Sýningarstjóri er dr. Thomas Lyngby, sagnfræðingur og sýningarstjóri Nesstofu og mun teymið vinna náið með honum við útfærslu og miðlun tillagna hans við hönnun sýningarinnar. Einnig mun teymið vinna með sýningarstjórn, sem skipuð er fulltrúum Náttúruminjasafns, Þjóðminjasafns og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.

Tengt efni

  • Hjartanlega til hamingju verðlaunahafar Hönnunarverðlauna Íslands 2026!

  • Hver á efnið? Líflegar umræður um gervigreind og höfundarétt á Tölum um

  • Einstakt tækifæri til starfsnáms á Feneyjatvíæringnum 2027

Dagsetning
15. nóvember 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Valferli
  • Greinar
  • Sýning
  • Sýningarhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200