Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Einstakt tækifæri til starfsnáms á Feneyjatvíæringnum 2027

4. nóvember 2026

Óskað er eftir starfsnemum til að vinna við sýninguna SOAK: Rituals of Collective Belonging sem er framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2027, einum mikilvægasta viðburði á sviði arkitektúrs á heimsvísu. Á tvíæringnum koma saman aðilar sem vinna á vettvangi arkitektúrs og þróun manngerðs umhverfis, t.a.m. fulltrúar ríkja, sveitarfélaga, arkitektar og hönnuðir, sérfræðingar á sviði byggingartækni, framleiðendur byggingarefna, fjárfestar og þróunaraðilar bygginga svo einhverjir séu nefndir. Árið 2025 var fyrsta sinn sem Ísland tók þátt á Feneyjatvíæringnum með sýningunni Lavaforming. Þá voru 66 þjóðir sem tóku þátt og voru sýningagestir yfir 298.000 talsins og komu þeir allstaðar að úr heiminum. 

Verið er að leita að 9 starfsnemum. Athugið að tímabil starfsnema eru mislöng.
Starfsnemar vinna að jafnaði 30 tíma á viku. 

Tímabil

3. maí - 1. júlí 2027
3. maí -19. júlí 2027
3. maí - 6. ágúst 2027
3. maí - 30. ágúst 2027
2. júlí - 24. september 2027
20. júlí - 28. nóvember 2027
7. ágúst 2027 - 28. nóvember 2027
31. ágúst 2027 - 28. nóvember 2027
25. september 2027 - 28. nóvember 2027

Hverjir geta sótt um?

- Háskólanemar á öllum háskólastigum

Helstu verkefni og ábyrgð:
- Móttaka gesta og miðlun sýningar og upplýsingum um arkitektúr á Íslandi

- Umsjón með íslenska skálanum á meðan dvöl stendur
- Starfsnemar fá góða kynningu á íslenska skálanum frá teyminu sem stendur á bak við SOAK áður en farið er út í starfsnámið 

Ávinningur af starfsnáminu:

- Miðlun arkitektúrs í ræðu og riti
- Færni í samskiptum
- Aukin þekking á alþjóðlegum arkitektúr

Kostur starfsnámsins:

- Víkkar tengslanet
- Veitir alþjóðlega reynslu
- Styrkir ferilskrá

Hæfniskröfur:

- Sjálfstæði, metnaður og drifkraftur
- Hæfni og áhugi á að til að tjá sig í ræðu og riti um arkitektúr
- Mjög góð enskukunnátta og þekking á ítölsku er kostur

Ábyrgð starfsnema:

- Útvega sér íbúðarhúsnæði
- Koma sér til og frá Feneyjum

Nemendur sækja um styrk til síns heimaskóla: 

- Fullur styrkur er:
- Erasmus +: 756 Evrur mánaðarlega
- Flugstyrkur: 395 Evrur

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs veitir eftirfarandi stuðning:

- 450 Evrur mánaðarlega
- Aðgöngumiði á tvíæringinn yfir tímabilið
- Starfsnemar á vegum MH&A eru bæði slysa og tjónatryggðir á meðan dvöl stendur.

Opnunartími íslenska skálans: 

- Sumaropnun: 11:00-19:00
- Haustopnun: 10:00-18:30 (frá 1. október-23. nóvember)
- Lokað á mánudögum (fyrir utan einstaka daga)

- Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi í starfsnámið. Eins þarf að fylgja upplýsingar um hvaða tímabil er óskað eftir. Tímabilin mega vera fleiri en eitt sem óskað er eftir.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um!

Frekari upplýsingar veitir Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri Feneyjatvíæringsins í arkitektúr, gerdur@honnunarmidstod.is

Umsóknarfrestur rennur út 7. desember 2026. Umsóknir skal senda á netfangið: gerdur@honnunarmidstod.is

SOAK: Rituals of Collective Belonging

Samfélag í bleyti

Smelltu hér

Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr

Smelltu hér

Tengt efni

  • Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Opið kall: Sýning á íslenskri hönnun og arkitektúr á 3daysofdesign 2027

  • David Kohn kemur fram á DesignTalks - Forsalan er hafin!

Dagsetning
4. nóvember 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • GREINAR
  • Feneyjatvíæringur
  • Feneyjartvíæringur

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200