Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

David Kohn kemur fram á DesignTalks - Forsalan er hafin!

2. nóvember 2026

Opnað hefur verið fyrir forsölu á alþjóðlegu hönnunarráðstefnuna DesignTalks sem fer fram miðvikudaginn 7. apríl 2027 í Silfurbergi í Hörpu. Breski arkitektinn David Kohn er fyrsti fyrirlesarinn sem tilkynntur er á ráðstefnuna sem ár hvert leiðir saman framúrskarandi hönnuði, arkitekta og skapandi hugsuði víðs vegar að úr heiminum.

Þema HönnunarMars 2027 er INNSÝN og verður sjónum beint að því sem liggur að baki sköpuninni. Hugmyndum, rannsóknum, tilraunum og þeim fjölbreyttu ferlum sem leiða til nýrra lausna. Á DesignTalks verður kafað ofan í heim hönnunar og arkitektúrs, ólíkar nálganir og hugmyndir sem ögra viðteknum hugmyndum og opna nýjar dyr.

DesignTalks hefur fest sig í sessi sem einn af lykilviðburðum HönnunarMars og mikilvægur vettvangur innblásturs, samtals og nýrra hugmynda. Ráðstefnan hefur farið fram fyrir fullu húsi undanfarin ár og boðið gestum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim og sköpunarferli fólks sem mótar samtímann og framtíðina með verkum sínum.

David Kohn stígur á svið DesignTalks

Fyrsti fyrirlesarinn sem tilkynntur er á DesignTalks 2027 er David Kohn, arkitekt og kennari í London. Hann er stofnandi arkitektastofunnar David Kohn Architects sem hefur vakið athygli fyrir hugmyndaríka nálgun sína á flókin verkefni í sögulegu umhverfi og áherslu á samstarf í hönnunarferlinu.

Meðal nýlegra verkefna stofunnar eru ný háskólasvæði fyrir Oxford-háskóla í Bretlandi og Hasselt-háskóla í Belgíu, sýningarrými fyrir Modern Art Oxford og Victoria and Albert Museum í London, auk íbúðarhúsa í enskri sveit.

Árið 2025 kom út bók um verk stofunnar hjá König Books þar sem farið er yfir fjölbreytt verkefni hennar og nálgun á arkitektúr. David Kohn hefur jafnframt kennt arkitektúr í yfir tvo áratugi og mun gegna stöðu gestaprófessors við Yale-háskóla árið 2027. Utan arkitektastofunnar hefur hann mikinn áhuga á samtímalist og situr í stjórn bresku listastofnunarinnar Artangel.

Fleiri spennandi fyrirlesarar verða kynntir til leiks á næstu vikum. Fylgist með!

Forsalan er hafin á tix.is

Forsala: 19.900 ISK

Fullt verð: 23.900 ISK

Listrænt teymi dagskrá DesignTalks skipa Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton, Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín, Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU, Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands og Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi. 

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Tengt efni

  • Opið kall: Sýning á íslenskri hönnun og arkitektúr á 3daysofdesign 2027

  • Óskaland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Dagsetning
2. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • DesignTalks
  • HönnunarMars
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200