Opið kall: Sýning á íslenskri hönnun og arkitektúr á 3daysofdesign 2027

Auglýst er eftir tillögum að sýningu á íslenskri hönnun og arkitektúr á alþjóðlegu hönnunarhátíðinni 3daysofdesign, sem fram fer í Kaupmannahöfn 9.–11. júní 2027.
Leitað er að hönnuðum, arkitektum, teymum eða fyrirtækjum með sterka hugmynd að sýningu og metnað til að nýta þátttöku í 3daysofdesign til að auka sýnileika, efla alþjóðleg tengsl og skapa viðskipti.
Sýningin verður haldin í anddyri sendiráðs Íslands á Bryggen í Kaupmannahöfn, þar sem kynning á íslenskri hönnun og arkitektúr hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður á hátíðinni. Íslenskum hönnuðum og arkitektum gefst tækifæri til að kynna verk sín og hugmyndir á alþjóðlegum vettvangi, auka sýnileika sinn og mynda tengsl við fagfólk, fyrirtæki og aðra hagaðila víðsvegar að úr heiminum.
Um 3daysofdesign
3daysofdesign er árleg þriggja daga hönnunarhátíð sem fer fram víðsvegar um Kaupmannahöfn. Hátíðin hefur vaxið ört undanfarin ár og er orðin mikilvægur alþjóðlegur vettvangur fyrir hönnun, nýsköpun og tengslamyndun.
Á hátíðinni koma saman hundruð alþjóðlegra vörumerkja, rótgróinna hönnunarfyrirtækja og upprennandi hönnuða. Fjölbreytt dagskrá spannar allt frá nýjum húsgagna- og vörulínum, lýsingu og innanhússhönnun til tilraunakenndrar hönnunar og nýsköpunar. Sýningar og viðburðir fara fram í sýningarsölum, galleríum, verslunum, verkstæðum og öðrum óhefðbundnum sýningarrýmum víðs vegar um borgina.
Íslenskir hönnuðir hafa tekið þátt í hátíðinni á vegum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs undanfarin fjögur ár. Hér má kynna sér þátttöku Íslands undanfarin ár: 2026, 2025 og 2024.
Markmið þátttöku Íslands
Markmið þátttöku Íslands í 3daysofdesign er að vekja athygli á íslenskri hönnun, arkitektúr, hugviti og nýsköpun, setja íslenska hönnun í samhengi við alþjóðlega strauma og stefnur og stuðla að nýjum faglegum tengslum og viðskiptasamböndum.
Sýningunni er ætlað að ná til alþjóðlegs fagfólks, fyrirtækja, fjölmiðla og almennra gesta hátíðarinnar og skapa tækifæri fyrir íslenska hönnuði og arkitekta til að kynna verk sín á nýjum vettvangi.
Hverjir geta sótt um?
Leitað er að hönnuðum, arkitektum, teymum eða fyrirtækjum með sterka hugmynd að sýningu og metnað til að nýta þátttöku í 3daysofdesign til að auka sýnileika, efla alþjóðleg tengsl og skapa viðskipti. Tillögur geta meðal annars byggst á fullmótuðum verkum, nýjum vörum eða vörulínum, verkum sem þegar eru á markaði eða rannsóknar- og tilraunaverkefnum.
Umsækjendur þurfa að hafa getu og fjármagn til að þróa og útfæra sýninguna og standa straum af þeim kostnaði sem þátttökunni fylgir.
Val á sýningu
Við mat á tillögum verður meðal annars horft til eftirfarandi þátta:
- Fagleg gæði og fyrri árangur: Hvort umsækjendur hafi vakið athygli með verkum sínum, meðal annars á HönnunarMars, eða hlotið tilnefningar eða verðlaun í Hönnunarverðlaunum Íslands.
- Hugmynd og listræn nálgun: Hvort tillagan byggi á sterkri hugmynd sem samræmist markmiðum þátttöku Íslands í hátíðinni.
- Alþjóðleg sókn: Hvort þátttaka í 3daysofdesign falli að áætlunum umsækjenda um alþjóðlega kynningu, tengslamyndun eða markaðssókn.
- Framkvæmanleiki: Hvort tillagan byggi á raunhæfri verk- og kostnaðaráætlun
Framlag samstarfsaðila og kostnaður þátttakenda
Samstarfsaðilar leggja til
- Skráningargjald á 3daysofdesign og opinbera skráningu sýningarinnar í dagskrá hátíðarinnar.
- Sýningarrými í anddyri sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn.
- Ráðgjöf við sýningarstjórnun og útfærslu sýningar.
- Aðstoð við kynningar- og almannatengsl.
- Aðstoð við uppsetningu sýningar.
- Opnunarboð og mögulega aðra viðburði í tengslum við sýninguna.
Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á kostnaði við:
- Þróun, mótun og útfærslu sýningarinnar.
- Ferðir og gistingu.
- Flutning sýningargripa og verka.
- Uppsetningu og frágang sýningarinnar.
- Önnur tilfallandi útgjöld vegna þátttökunnar.
Valnefnd
Valnefnd skipuð fulltrúum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, Íslandsstofu, sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn og fagfólki á sviði hönnunar og arkitektúrs fer yfir innsendar tillögur og velur verkefni til þátttöku. Valnefnd skipa:
- Álfrún Pálsdóttir, fagstjóri almannatengsla hjá Íslandsstofu.
- Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt og meðeigandi arkitektastofunnar Kurt og Pi.
- Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
- Ólöf Rut Stefánsdóttir, hönnuður og stjórnandi hjá Ásmundarsal.
- Stefanía K. Bjarnadóttir, viðskipta- og menningarfulltrúi við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn.
Umsóknir og skil
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn tillögu að sýningu ásamt einfaldri myndrænni framsetningu.
Umsókn skal vera að hámarki fjórar A4-síður og innihalda:
- Lýsingu á hugmynd, áherslum og innihaldi sýningarinnar.
- Lista yfir sýnendur og þátttakendur.
- Verk-, kostnaðar- og kynningaráætlun.
- Einfalda myndræna framsetningu og/eða myndir af fyrirhuguðum sýningarverkum.
Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 (GMT) fimmtudaginn 3. desember 2026. Umsóknum skal skila með tölvupósti á samkeppni@honnunarmidstod.is.
Fyrirspurnir
Umsækjendur geta sent fyrirspurnir um umsóknarferlið á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is til og með mánudeginum 16. nóvember 2026. Fyrirspurnir og svör við þeim verða birt á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs fimmtudaginn 19. nóvember 2026.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur umsjón með verkefninu og annast verkefnastjórnun í samstarfi við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Íslandsstofu.


