Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Lína 99 frá FÓLK tilnefnd til tvennra hönnunarverðlauna í Danmörku

27. október 2026

Hillukerfið Lína 99 eftir Gunnar Magnússon, sem íslenska hönnunarfyrirtækið FÓLK hefur endurútgefið í nýjum búningi, hefur hlotið tvær tilnefningar til Bo Bedre hönnunarverðlaunanna 2026 í Danmörku. Verkið er tilnefnt í flokkunum Græn hönnun ársins og Lesendaverðlaun ársins. Verðlaunin verða afhent 3. nóvember næstkomandi.

Lína 99 er einingaskipt hillukerfi sem Gunnar Magnússon hannaði árið 1972. FÓLK hefur nú gefið þessari íslensku hönnunarperlu nýtt líf með endurútgáfu í FSC-vottuðum viði og nýstárlegu plötuefni úr hrísgrjónahýði, sem er afgangsefni frá evrópskum landbúnaði. Danski hönnuðurinn Martin Kechayas hefur jafnframt endurtúlkað hillukerfið undir heitinu LINA 99 REMIXED, þar sem hann leikur sér með liti og samsetningar án þess að breyta upprunalegri hönnun Gunnars.

Í flokki Grænnar hönnunar ársins er Lína 99 tilnefnd ásamt vörum frá þekktum hönnunarmerkjum á borð við Mater, Anno Studio og Natural Material Studio.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá íslenska hönnun frá árinu 1972 hljóta þessa viðurkenningu í Danmörku, þar sem Gunnar Magnússon lærði á sínum tíma og átti sterk tengsl við hönnunarsamfélagið þar. Með endurútgáfu Línu 99 viljum við bæði varðveita íslenska hönnunararfleifð og sýna hvernig ný efni og nýjar framleiðsluaðferðir geta skapað henni framtíð. Þessar tilnefningar eru okkur mikil hvatning,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK Reykjavík.

Að verðlaununum standa dönsku hönnunar- og heimilistímaritin Bo Bedre, Bolig Magasinet og Scandinavian Living.

Almenningur getur kosið Línu 99 til Lesendaverðlauna ársins á vef Bo Bedre.

Tengt efni

  • Íslensk baðmenning vekur athygli í franska ELLE Décoration

  • Hlátur, gleði og góð stemning á Tölum um fyrirlestri

  • Opið kall eftir sýningum í Norræna húsinu á HönnunarMars

Dagsetning
27. október 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Viðtal
  • Bo Bedre

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200