Hlátur, gleði og góð stemning á Tölum um fyrirlestri

Það er fátt betra en að byrja daginn á góðum kaffibolla, skemmtilegum sögum og hressilegum hlátri. Gestir fjölmenntu í Grósku þar sem boðið var upp á rjúkandi heitt kaffi og croissant að vanda áður en dagskráin hófst. Salurinn fylltist af lífi og fjöri og ekki leið á löngu þar til hláturinn tók að óma um salinn. Miðstöðin þakkar öllum kærlega fyrir komuna!
Að þessu sinni var sjónum beint að sköpunargleðinni, forvitninni og kraftinum sem býr í hönnun og arkitektúr. Fyrirlesarar nálguðust viðfangsefnið hver á sinn hátt og deildu hugmyndum, vangaveltum og sögum úr sínum skapandi heimi. Útkoman var einstaklega lífleg og skemmtileg morgunstund þar sem gleðin var ekki aðeins umræðuefnið heldur líka alltumlykjandi.
Á svið stigu Birta Fróðadóttir arkitekt, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir myndlýsir, Logi Pedro vöruhönnuður, Júlíanna Ósk Hafberg fatahönnuður, Sóley Jóhannsdóttir fatahönnuður og Þorgeir K. Blöndal grafískur hönnuður. Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður og stofnandi Grallaragerðarinnar, hélt utan um dagskrána af sinni alkunnu snilld.
Morguninn minnti okkur á hversu mikilvægt það er að gefa sköpunargleðinni rými, sækja innblástur hvert til annars og njóta þess að koma saman. Á tímum þegar vindar blása úr öllum áttum er ekki úr vegi að byrja daginn á smá bjartsýni, góðum hugmyndum og hellings hlátri.
Hér að neðan er hægt að horfa á fyrirlesturinn sem var tekinn upp. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir mánaðarlegum viðburðum undir yfirskriftinni Tölum um hönnun og arkitektúr í samstarfi við Vísindagarða Háskóla Íslands, Grósku og Bláa Lónið.















Upptaka af fyrirlestrinum


