Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Íslensk baðmenning vekur athygli í franska ELLE Décoration

27. október 2026

Íslensk baðmenning og arkitektúr eru í sviðsljósinu í nóvemberhefti franska hönnunartímaritsins ELLE Décoration. Þar er meðal annars fjallað um verk Basalt arkitekta og SOAK, framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í arkitektúr árið 2027, þar sem íslensk baðmenning og mikilvægi sundlauga sem félagslegra samkomustaða verður í forgrunni.

Franski blaðamaðurinn Jean-Christophe Camuset heimsótti Ísland í maí síðastliðnum í tengslum við HönnunarMars, þar sem hann kynnti sér íslenska hönnun og arkitektúr. Í nýjustu umfjöllun sinni beinir hann sjónum að íslenskri baðmenningu sem á sér djúpar rætur í sögu þjóðarinnar og hefur um aldir verið órjúfanlegur hluti af daglegu lífi landsmanna.

Í greininni er meðal annars fjallað um Sjóböðin á Húsavík, GeoSea, sem hönnuð eru af Basalt arkitektum og hvernig arkitektúrinn fellur að náttúrulegu umhverfi sínu. Þá er einnig fjallað um SOAK, framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í arkitektúr árið 2027, þar sem baðmenning verður notuð til að varpa ljósi á mikilvægi félagslegra tengsla og samveru í borgarumhverfi.

Í viðtali við tímaritið segir Marcos Zotes, arkitekt og einn eigenda Basalt arkitekta, að sundlaugar séu mun meira en staðir til að stunda líkamsrækt eða slaka á.

„Sundlaugin er staðurinn sem við förum á fyrir eða eftir vinnu, þar sem við hittum fólk sem við myndum annars aldrei hitta,“ segir Marcos í viðtalinu.

Markmið verkefnisins á Feneyjatvíæringnum er að sýna hvernig hægt sé að hanna borgir þar sem íbúar eiga í raunverulegum samskiptum, á tímum þegar félagslegum samkomustöðum fer fækkandi.

Umfjöllun ELLE Décoration er ánægjulegur vitnisburður um þann alþjóðlega áhuga sem íslensk hönnun og arkitektúr vekja og mikilvægi þess að byggja upp tengsl við erlenda fjölmiðla í gegnum viðburði á borð við HönnunarMars.

Tengt efni

  • Mystic Garden tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Leiftur tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Backflip tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Dagsetning
27. október 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • Feneyjartvíæringur
  • Viðtal
  • SOAK

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200