Fjöldi íslenskra hönnuða taka þátt í sýningum á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn dagana 10.–12. júní

3daysofdesign hefur verið haldin árlega frá 2013 og er orðin stærsta hönnunarhátíð á Norðurlöndum. Hátíðin teygir anga sína víða um Kaupmannahöfn, þar sem fjölbreytileg hönnun er sýnd í sýningarsölum, verslunum, galleríum, sendiráðum og almenningsrými.
Meðal íslendinga sem taka þátt í 3daysofdesign í ár eru Dögg Guðmundsdóttir, Sirrý Ágústsdóttir, Árný Þórarinsdóttir, Ólöf Rut Stefánsdóttir, Theodóra Alfreðsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir, Jón Hinrik Höskuldsson, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir og Guðmundur Lúðvík Grétarsson.


A Space Between States | Dögg Guðmundsdóttir og Dýpi
A Space Between States er sýning í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Á sýningunni er varpað ljósi á ný og nýleg verk eftir Dögg Guðmundsdóttur hönnuð og einn af þátttakendum sjónvarpsþáttarins Danmarks Næste Klassiker og kalkmálningu frá fyrirtækinu Dýpi sem sækir innblástur í íslenskra náttúru. Sýningarstjóri er Ólöf Rut Stefánsdóttir, skapandi stjórnandi sem starfar á sviði hönnunar, viðburða og miðlunar.
Viðburðir
10. júní | Opnun sýningarinnar A Space Between States | 16:30–18:30
11. júní | Design Dialogues: Marie-Louise Høstbo x Dögg & Dýpi | 10:30–12:00
Dýpi, Dögg Guðmundsdóttir og Marie-Louise Høstbo ræða hönnun, efni, rými og tengsl fortíðar og samtíðar. Marie-Louise er arkitekt og stofnandi Høstbo Gallery í Kaupmannahöfn og starfar á mörkum hönnunar og arkitektúrs með sérstaka áherslu á sýningarstjórn og hvernig hlutir, efni og ljós móta upplifun okkar af rými. Að loknu samtalinu verður boðið upp á kokteil frá Marberg með íslensku þangi og sjávargróðri.
12. júní | Leiðsögn | 11:00–11:30
Sjá frekari upplýsingar um A Space Between States hér.
Staðsetning: Íslenska sendiráðið, Strandgade 89, 1401 Kaupmannahöfn.




FÓLK Remixed by Martin Kechayas
Með djúpri virðingu fyrir hönnun og viðurkenningu á brýnni þörf fyrir að auka hringrás hráefna, skapar FÓLK hluti og húsgögn með háu hönnunargildi.
FÓLK hefur á síðustu tveimur árum umbreytt 17,5 tonnum af úrgangi í hönnunarvörur. Það eru 17,5 tonn af efni sem hefur verið flokkað sem afskurður, úrgangur eða óhæft til framleiðslu, sem er bjargað frá því að vera urðað eða brennt.
Á 3daysofdesign frumsýnir FÓLK samstarf við danska hönnuðinn Martin Kechayas, einn af þátttakendum sjónvarpsþáttarins Danmarks Næste Klassiker 2026, þar sem hann endurtúlkar Línu99, hönnun Gunnars Magnússonar frá 1972. Í þessari sérstöku útgáfu skoðar Martin hvernig rótgróið húsgagn getur öðlast nýtt líf með efnisbreytingum og listrænni íhlutun. Niðurstaðan er samtal milli íslensks hönnunararfs, hringrásarhugsunar nútímans og listrænni nálgun. Endurgerðin varpar ljósi á einstakar hönnunaraðferðir Martins Kechayas, tímaleysi upprunalegrar hönnunar Gunnars og metnað FÓLKs til að færa norræna húsgagnaframleiðslu inn í nýja hráefna- og hringrásarhugsun.
Í ár kynnir FÓLK fyrstu húsgögnin sem búin eru til úr afgangi frá evrópskri hrísgrjónaframleiðslu. Hrísgrjónahýði eru algeng á Spáni og með nýrri tækni eru þau umbreytt í samsettar plötur sem fást í nokkrum náttúrulegum litbrigðum.
FÓLK sýnir á Store Kongensgade 108, í samstarfi við Creative Denmark og Dansk Industri.
Viðburðir
11. júní | Designing for a Circular Future: Stories of Transformations | 15:00
Þátttakendur eru Theodóra Alfreðsdóttir (IS), Ragna Sara Jónsdóttir (IS), Martin Kachayas (DK), NAVET (SE), Marcus Götschl (DE) og Teresa Porto (SP).
11. júní | FÓLK Opening Party: Remixed by Martin Kechayas | 16:00–18:00
Nánari upplýsingar um FÓLK Remixed by Martin Kechayas hér.
Staðsetning: Store Kongensgade 108




Bundle Studio
Bundle Studio er hönnunarstofa í Kaupmannahöfn sem Jón Hinrik Höskuldsson og Kirstine Nørgaard Sejersen reka. Stofan þróar húsgögn og hluti þar sem efnisrannsóknir, iðnhönnun og framleiðsla mætast. í ár tekur Bundle Studio þátt í tveimur samsýningnum.
Á sýningunni Material Matters í Christianshavn sýnir Bundle Studio stólinn Jacana sem þróaður hefur verið í samstarfi við Stora Enso. Verkefnið skoðar möguleika lignínbundins líms sem valkost við hefðbundin lím í húsgagnaframleiðslu, sem oft byggja á olíu og innihalda formaldehýð.
Meira um Material Matters hér.
Staðsetning: Gammel Dok, Strandgade 27B, 1401 Copenhagen
Á sýningunni GROUPED á Íslandsbryggju sýnir Bundle Studio hliðarborðið Bale, sem er unnið úr hörtrefjum. Verkið byggir á áframhaldandi rannsóknum okkar á lífrænum efnum og hvernig eiginleikar efnis geta mótað form og smíði hlutar.
Viðburðir:
11. júní | Opening drinks at GROUPED | 16:00–19:00
Meira um GROUPED hér.
Meira um Bundle Studio á 3daysofdesign hér.
Staðsetning: Sturlasgade 14C, 2300 Copenhagen




Dögg Guðmundsdóttir
Auk þátttöku Daggar í sýningunni í íslenska sendiráðinu verður hún víða á 3daysofdesign. Hjá Design House Stockholm sýnir hún borðið Aria á sýningunni FRAMING sem sameinar leiðandi alþjóðleg hönnunarmerki. Þá tekur hún einnig þátt hjá Andersen Furniture á sýningunni 110 years of Danish design með Edge Collection og hjá FDB Møbler með lampana Hiti.
Staðsetningar
FRAMING | Design House Stockholm | Odd Fellow Palace, Gentleman’s Lounge, Bredgade 28, 1st floor
110 years of Danish design | Andersen Furniture | Bredgade 23A, 1st floor
FDB Møbler | Bredgade 19



Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir tekur þátt í sýningunni FRAMING í Odd Fellow Palace í Kaupmannahöfn, þar sem Design House Stockholm kynnir nýjustu hönnun frá fyrirtækinu. Þar verður Knot XL eftir Ragnheiði sýndur sem hluti af sýningu fyrirtækisins.
Staðsetning: FRAMING | Design House Stockholm | Odd Fellow Palace, Gentleman’s Lounge, Bredgade 28, 1st floor


