Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2027

Sýningin Samfélag í bleyti hefur verið valin sem framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringinn í arkitektúr sem fer fram árið 2027. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setur íslenska baðmenningu fram sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans.
Sýningarstjóri er Marcos Zotes, einn eigenda Basalt arkitekta. Með honum í teymi eru arkitektarnir Hrólfur Karl Cela og Perla Dís Kristinsdóttir, hönnuðirnir Kristín Eva Ólafsdóttir og Nils Wiberg frá Gagarín, auk Ránar Flygenring, mynd- og rithöfundar.
Á tímum aukinnar félagslegrar einangrunar hefur sjaldan verið meiri þörf fyrir rými sem styðja við samveru og mannleg tengsl. Samfélag í bleyti byggir á séríslenskri baðmenningu og skoðar hvernig sundlaugar og baðstaðir hafa þróast í mikilvæga félagslega innviði þar sem fólk mætist á jafnræðisgrundvelli, óháð aldri, stöðu eða uppruna. Menningin sem skapast í vatninu verður þannig vettvangur fyrir óformleg samskipti og samfélagslega samheldni. Með því að kortleggja hversdagslegar venjur íslenskrar baðmenningar kannar sýningin hvernig þessi sameiginlega reynsla af vatni getur styrkt tengsl milli fólks.

„Í Samfélagi í bleyti er íslenski skálinn hugsaður sem rannsóknarstofa fyrir framtíð hins daglega lífs,“ segir Marcos Zotes, sýningarstjóri. „Með því að sýna fram á að innviðir geti verið bæði hagnýtir og um leið skapað sterkan grunn fyrir félagsleg tengsl viljum við breikka umræðuna um hvernig við búum saman og hvernig við byggjum. Við köllum eftir nýrri samfélagsvitund og spyrjum: ef við getum fundið samhljóm í vatni, hvað stendur þá í vegi fyrir því að finna hann einnig í borgarrýminu almennt?“
Í rökstuðningi stýrihóps um íslenska skálann segir: „Samfélag í bleyti opnar á mikilvæga umræðu um hlutverk almenningsrýma og gildi þeirra fyrir félagslega samheldni á tímum þar sem einangrun og sundrung verða sífellt meira áberandi í samfélögum heimsins. Á bak við Samfélag í bleyti stendur firna sterkt teymi sem hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á umfjöllunarefninu, sem og sýningargerð, frásagnarformi og miðlun flókinna hugmynda til breiðs hóps gesta. Samfélag í bleyti sameinar sterka frásögn og mikilvæga samfélagslega umræðu um hvernig arkitektúr getur stuðlað að aukinni samkennd og tengslum milli fólks.“
„Með því að beina sjónum að böðum sem þriðja rýminu, hvorki heimili né vinnustað, opnar sýningin mikilvæga umræðu um hlutverk sameiginlegra rýma og gildi þeirra fyrir samfélagslega samheldni,” segir Halla Helgadóttir, kommisjóner íslenska skálans og framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. „Sýningin á rætur sínar í einstakri íslenskri baðmenningu, sem UNESCO hefur skráð á lista yfir óáþreifanlegan menningararf, þar sem aðgengi að heitu vatni hefur gert sundlaugar og baðstaði um allt land mögulega. Staðirnir eru víða vel hönnuð kennileiti sem gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi og hafa orðið órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu og sameiginlegri sjálfsmynd þjóðarinnar. Við hlökkum til að færa íslenska baðmenningu til Feneyja!
Sýningarteymið sameinar sérþekkingu á sviði arkitektúrs, gagnvirkrar hönnunar, sjónrænnar frásagnar og íslenskrar bað- og sundlaugarmenningar.
Basalt arkitektar vinna með arkitektúr og landslag þar sem tengsl byggðs umhverfis við náttúru, staði og samfélag eru í forgrunni. Stofan var stofnuð af Sigríði Sigþórsdóttur árið 2009 og er í dag leidd af henni ásamt Hrólfi Karli Cela, Marcos Zotes og Perlu Dís Kristinsdóttur. Basalt arkitektar hafa hannað fjölda bað- og sundstaða, þar á meðal sundlaugina á Hofsósi, Guðlaugu á Akranesi, Skógarböðin í Eyjafirði og Bláa Lónið. Stofan hefur hlotið innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar fyrir framlag sitt til þróunar íslenskrar samtíma baðmenningar.
Gagarín er hönnunarstofa sem starfar á alþjóðlegum vettvangi fyrir söfn, gestastofur, almenningsrými, vörumerki og upplifunarverkefni. Stofan er þekkt fyrir framúrskarandi hugmyndir og lausnir sem hafa markað nýja nálgun í hönnun gagnvirkra sýninga og upplifunar, þar sem sjónræn miðlun, gagnvirk tækni og rýmishönnun fléttast saman í heildstæða upplifun með það að markmiði að skapa skýr og eftirminnileg tengsl milli fólks, staða, þekkingar og hugmynda.
Rán Flygenring er margverðlaunaður hönnuður, rithöfundur og myndhöfundur. Hún er m.a. höfundur bókarinnar Sketching/Bathing in Iceland, sjónrænnar leiðsögubókar um íslenska sundlaugamenningu sem kom út árið 2025. Verk hennar eru þekkt fyrir lifandi og marglaga frásagnir þar sem sterkur myndrænn stíll sameinast húmor og leikgleði, oft með sterka pólitíska skírskotun.
Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr opnar laugardaginn 8. maí og stendur til sunnudagsins 21. nóvember 2027. Sýningarstjórar tvíæringsins eru arkitektarnir Wang Shu og Lu Wenyu. Þema tvíæringsins 2027 er Do Architecture - For the Possibility of Coexistence Facing a Real Reality.
Kommisjoner íslenska skálans er Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Verkefnastjóri íslenska skálans er Gerður Jónsdóttir, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.


