Samkeppni um hönnun 100 ára afmælismerkis fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg

Í tilefni af 100 ára afmæli Slysavarnafélagsins Landsbjargar, landssamtaka björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi, standa félögin fyrir opinni samkeppni um hönnun á 100 ára afmælismerki. Samkeppnin er haldin í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Markmið
Markmið er að skapa afmælismerki fyrir félögin sem hægt er að nýta með fjölbreytilegum hætti. Óskað er eftir tveimur útgáfum af merkinu. Annarsvegar þar sem stendur 100 ár(a) og hinsvegar þar sem stendur Síðan 1928. Merkið þarf að vera skalanlegt en það verður m.a. notað á prenti, á skilti, á vefmiðlum, sem barmmerki og víðar. Ef keppandi óskar eftir að nota liti í merkinu þá er hægt að styðjast við stílbeina félagsins, en það er ekki skilyrði. Ef tillögu er skilað í lit er óskað eftir því að monochrome útgáfa fylgi með.
Áherslur dómnefndar
– Heildaryfirbragð
– Styrkur hugmyndar
– Hagnýting og raunhæfni
Þátttökuskilyrði
Samkeppnin er opin öllum hönnuðum.
Umfang
Óskað er eftir tveimur útgáfum af merkinu. Annarsvegar þar sem stendur 100 ár(a), sem verður fyrst og fremst notuð árið 2028, og hinsvegar þar sem stendur Síðan 1928, sem hægt verður að nota jafnt núna og í framtíðinni.
Merkið verður notað víða, m.a. á prenti, á skilti, sem stafrænt efni og sem barmmerki, og þarf því að vera skalanlegt.
Tímarammi samkeppninnar
– Samkeppni auglýst 26. maí
– Fyrirspurnarfrestur 12. júní
– Svör við fyrirspurnum 19. júní
– Skilafrestur tillagna er til hádegis (12:00 GMT) miðvikudaginn 9. september
– Vinna dómnefndar fer fram 9. - 18. september
– Samið við teymi og niðurstaða kynnt miðvikudaginn 23. september
– Vinna við frekari útfærslu og framkvæmd hefst í lok september

Bakgrunnur
Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og gegna lykilhlutverki í öryggi landsmanna og ferðamanna. Samtökin byggja að stórum hluta á sjálfboðaliðastarfi og samanstanda af fjölmörgum björgunarsveitum og slysavarnadeildum um allt land. Þúsundir sjálfboðaliða leggja fram tíma sinn og þekkingu til að sinna leit og björgun, slysavörnum og fræðslu til almennings.
Helstu verkefni Landsbjargar eru leit að týndu fólki, björgun á sjó og landi, aðstoð við náttúruhamfarir og stuðningur við almannavarnir þegar stórar aðstæður skapast. Björgunarsveitirnar eru vel þjálfaðar og búa yfir sérhæfðum búnaði til að takast á við krefjandi aðstæður, svo sem í fjalllendi, á jöklum, í snjóflóðum eða á hafi úti.
Samtökin leggja einnig mikla áherslu á forvarnir og fræðslu, meðal annars með öryggisráðleggingum fyrir ferðalanga og námskeiðum fyrir almenning. Með því að efla vitund um öryggi í náttúru Íslands stuðla þau að því að fækka slysum og auka öryggi.
Starf Slysavarnafélagsins Landsbjargar er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag. Sjálfboðaliðar samtakanna sýna mikla samstöðu og fórnfýsi og tryggja að hjálp sé til staðar þegar hennar er þörf, oft við erfiðar og hættulegar aðstæður.
Fimm manna dómnefnd fer yfir innsendar tillögur
– Ásgrímur L. Ásgrímsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar
– Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Sýnar
– Einar Gylfason, grafískur hönnuður
– Snæfríð Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður
– Hrafn Gunnarsson, grafískur hönnuður, sköpunarstjóri Brandenburg
Úrslit og verðlaun
Niðurstaða samkeppninnar verður kynnt miðvikudaginn 23. september, á haustjafndægri.
Veitt verða ein verðlaun að upphæð kr. 1.000.000.-
Skilaform og nafnleynd
Merki skal skilað inn sem skjali í PDF-sniði í stærðinni A4 ásamt 50–350 orða texta um hugmyndina. Tillögum skal skila á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is.
Nafnleynd ríkir í samkeppninni. Upplýsingar um þátttakendur skulu eingöngu vera í tölvupósti en ekki í innsendum gögnum þ.e. ekki á sjálfu pdf skjalinu. Tillögu er veitt viðtaka berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.
Trúnaðarmaður samkeppninnar
Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri MH&A, gerdur@honnunarmidstod.is.


