Skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn hjá Hönnunarsafni Íslands

Hönnunarsafn Íslands býður upp á spennandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára í sumar. Fatahönnun, innanhússarkitektúr og húsgagnahönnun verða kynnt með leikgleði, sköpunarkraft og ímyndunarafl að leiðarljósi. Fræðslustarf safnsins hefur vakið athygli út fyrir landsteinana, en á nýafstöðnum HönnunarMars var yfirlitssýning um starfið valin sem ein af 10 hápunktum hátíðarinnar af hinu virta Dezeen magazine.
Hvert námskeið er í 4 daga í senn frá kl. 13:00 - 16:00 í fræðslurými Hönnunarsafnsins á 2. hæð.
„Það er gaman að geta boðið úrval sumarnámskeiða nú í fyrsta sinn í sumar fyrir krakka í sumarfríi sem þjálfar hönnunarhugsun, sköpunargleði og handverk. Við fáum reglulega börn á safnið í skólaheimsóknir og skapandi fjölskyldusmiðjur á sunnudögum en höfum fengið í auknu mæli fyrirspurnir um lengri námskeið, ekki síst til að auka flóruna í úrvali sumarnámskeiða“ segir Sigríður Sunna Reynisdóttir, en hún leiðir fræðslu og miðlun á Hönnunarsafni Íslands ásamt ÞYKJÓ hönnunarteymi sínu. „Síðastliðin ár höfum við verið að byggja starfið upp í átaksverkefni tengt Hönnunarstefnu Íslands til 2030 og það er ánægjulegt að finna uppskeruna núna.“
Námskeiðin eru eftirfarandi:

„Námskeiðið Heimurinn heima verður í júní með vöruhönnuðinum og leikmyndahönnuðinum Auði Ösp Gilsdóttur. Þar fá krakkar að prófa að hanna heimili fyrir ímyndaðan íbúa með ákveðnar þarfir og setja sig í spor innanhússarkitekta og vöruhönnuða. Hver þátttakandi fær tómt líkan að húsi sem þau innrétta eftir sínu höfði, við erum með nammibar stútfullan af efnivið sem þau velja úr til að skapa húsgögn, innréttingar og hvaðeina. Við elskum að sjá hvað þeim dettur í hug - stórkostlegar útisturtur í þakgörðum, stofur með þrautabraut og stjörnuskoðunarturnar!“ segir Sigríður Sunna og hlær. Að námskeiðinu loknu taka þau svo sköpunarverkið með sér heim.
„Ekki síður spennandi er splunkunýja námskeiðið okkar Barbífatahönnun sem er nú kennt í fyrsta sinn, bæði í júní/júlí og í ágúst. Þar þjálfast krakkar í fatahönnun, sníðagerð og textíltilraunum við að gera sín eigin föt í skala fyrir Barbie. Það er fatahönnuðurinn Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir sem leiðir þá smiðju, en hún var ein af hönnuðunum sem unnu frábærar fatalínur í Barbie-stærð á sýningunni okkar Barbie fer á Hönnunarsafnið. Það voru mjög margir krakkar sem komu á þá sýningu og kitlaði að fá að prufa að vinna sínar eigin fatalínur á Barbie svo það er okkur mikil gleði að geta nú boðið upp á það.“
Skráning fer fram á Abler síðu Hönnunarsafnsins. Nú gildir að hafa hraðar hendur því það eru ekki mörg pláss í boði.
Fyrir hvern? Krakka 9-12 ára!
Hvað kostar? Hvert námskeið kostar 27.500 kr.
Hvar er skráning? Á Ablersíðu Hönnunarsafnsins HÉR







