Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sigrún Guðjónsdóttir „Rúna“ fallin frá

19. maí 2026

Við minnumst Sigrúnar Guðjónsdóttur „Rúnu“ með hlýju og þakklæti, en hún lést nýverið, 99 ára að aldri. Rúna var einn áhrifamesta listakona og hönnuður sinnar kynslóðar og eftir hana liggur einstætt ævistarf sem mótaði íslenska sjónmenningu og hafði djúp áhrif á kynslóðir Íslendinga.

Verk Rúnu lifa áfram á heimilum landsmanna, í opinberu rými, kirkjum, stofnunum og söfnum og í sameiginlegu minni þjóðarinnar. Myndheimur hennar, með sínum ljóðrænu línum, mildu litapallettu og auðþekkjanlegu mótífum hefur fylgt mörgum frá barnæsku og skipar sérstakan sess í íslenskri hönnunar- og listasögu.

Rúna fæddist árið 1926 og ólst upp í Hafnarfirði. Hún laus kennaraprófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands aðeins 18 ára gömul áður en hún hélt til náms við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn ásamt eiginmanni sínum, myndhöggvaranum Gesti Þorgrímssyni. Þegar heim var komið stofnuðu þau Laugarnesleir ásamt fleiri listamönnum og þar hófst eitt merkasta frumkvöðlastarf íslenskrar hönnunarsögu.

Í verkum Rúnu sameinuðust myndlist og nytjahlutir á einstakan hátt. Hún vann óhrædd með íslenskan leir, þróaði eigin aðferðir og skapaði verk sem vöktu bæði forvitni og gleði. Hún lagði ríka áherslu á að leirlist stæði jafnfætis annarri myndlist og ruddi brautina fyrir nýja sýn á miðilinn hér á landi.

Verk hennar má sjá víða í íslensku samfélagi, meðal annars í Seljakirkju í höfuðstöðum ÁTVR og í hinu þekkta lágmyndaverki fyrir ofan inngang Laugardalshallar sem hún vann með Gesti. Þá átti hún farsælt samstarf við alþjóðleg fyrirtæki á borð við Bing & Gröndahl og Villeroy & Boch og varð fyrst Íslendinga til að skrifa undir samning við hið fyrrnefnda.

Rúna sinnti kennslu af mikilli alúð og var bæði farsæll og afar vel metinn kennari. Hún lét sig jafnframt málefni myndlistarmanna varða og markaði tímamót þegar hún varð fyrsta konan til að leiða félagssamtök myndlistarmanna á Íslandi.

Fyrir framlag sitt til lista og menningar hlaut hún ýmsar viðurkenningar, meðal annars þegar hún var útnefnd fyrsti bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2005 og síðar sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2014. Árið 2023 hlaut hún svo heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir brautryðjendastarf sitt og einstakt framlag til íslenskrar leirlistar. Í rökstuðningi dómnefndar kom fram að lífsstarf hennar hefði spannað hönnun, myndlist, handverk, kennslu og frumkvöðlastarf, auk þess sem hún hefði með sérkennum sínum og leikgleði orðið ótal listafólki innblástur.

Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands eru veitt einstaklingum sem hafa haft mótandi áhrif á íslenska hönnun og arkitektúr með ævistarfi sínu. Það var sérstakur heiður að geta veitt Rúnu þessa viðurkenningu árið 2023 og fagnað framlagi hennar til íslenskrar hönnunar á meðan hún var enn virk í sköpun sinni.

Í viðtali við Höllu Harðardóttur í Víðsjá undir lok síðasta árs sagði Rúna að það mikilvægasta í lífinu væri að vera ekki einmana, eiga fjölskyldu og vini „og fallegir hlutir, fegurðin.“ Þau orð endurspegla vel bæði manneskjuna og listina sem hún skildi eftir sig. Einnig var haft eftir henni „Á meðan maður getur unnið er tilveran skemmtileg“ en það endurspeglaðist vel í verkum Rúnu.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sendir aðstandendum og vinum Rúnu hlýjar kveðjur og þakkar fyrir ómetanlegt framlag hennar til íslenskrar hönnunar, myndlistar og menningar.

–

Tengt efni

  • Dögg & Dýpi – í samtali við náttúruna á 3daysofdesign

  • Fullur salur á fyrirlestri um borgargæði með frambjóðendum í Reykjavík

  • TAKK öll sömul fyrir vel heppnaðan og frábæran HönnunarMars!

Dagsetning
19. maí 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • GREINAR
  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • HÖNNUNARMIÐSTÖÐ

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200