Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fullur salur á fyrirlestri um borgargæði með frambjóðendum í Reykjavík

17. apríl 2026

Mikill áhugi var á opnum fyrirlestri um borgargæði og skipulag borga sem fram fór á vegum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku á dögunum. Húsfyllir var á viðburðinum og ljóst að umræðan um hvernig best sé að móta borgarumhverfi framtíðarinnar höfðar til breiðs hóps.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni Tölum um hönnun og arkitektúr, sem hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir fagfólk og almenning til að ræða þróun og áskoranir á sviði hönnunar og arkitektúrs. Viðburðirnir hafa notið vaxandi vinsælda og sýna glöggt hversu mikill áhugi er fyrir málefnum sem snerta mannlíf, byggðaþróun og gæði í nærumhverfi fólks.

Hvernig sköpum við borgargæði?

Í aðdraganda komandi kosninga var sjónum beint sérstaklega að borgargæðum og því hvernig beita megi arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar. Leitast var við að svara spurningum um hvernig skapa megi gott samfélag fyrir íbúa á öllum aldri og hvernig hönnun geti haft bein áhrif á lífsgæði.

Meðal þess sem rætt var:

  • Hvernig hönnun og arkitektúr geta einfaldað daglegt líf fólks
  • Hvernig skipulag styður við búsetu, menntun og velferð
  • Hlutverk góðrar hönnunar í samgöngum, öryggi og atvinnulífi

Fjölbreytt sjónarhorn fagfólks

Þrír fyrirlesarar fluttu erindi og sýndu dæmi úr íslenskum veruleika þar sem vel hefur tekist til við að skapa gæði í borgarumhverfi:

  • Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður hjá Pláss
  • Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt hjá teiknistofunni Stiku
  • Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi

Pallborð með oddvitum flokkanna

Að erindum loknum tóku við pallborðsumræður þar sem oddvitar stjórnmálaflokkanna í borginni ræddu hvernig þeir hyggjast beita hönnun og arkitektúr í stefnumótun sinni. Umræðunum stýrði Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP.

Þátttakendur í pallborði voru: Björg Magnúsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage, Kristinn Jón Ólafsson, Pétur Marteinsson, Silja Sóley Birgisdóttir, Líf Magneudóttir, Ingimar Þór Friðriksson, Einar Sveinbjörn Guðmundsson og Sigfús Aðalsteinsson.

Umræðurnar voru gagnlegar og sýndu að borgargæði eru sífellt mikilvægari þáttur í stefnumótun stjórnmála.

Vaxandi áhugi á hönnun og arkitektúr

Viðburðurinn er hluti af stærra átaki þar sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur staðið fyrir opnum fyrirlestrum í Grósku frá því í haust. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal um stöðu og framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi.

Samstarfsaðilar verkefnisins eru Gróska, Vísindagarðar og Bláa Lónið.

Ljóst er að slíkir viðburðir gegna mikilvægu hlutverki í að efla umræðu og vitund um hvernig hönnun og arkitektúr geta mótað betra samfélag. Áhugi almennings virðist aðeins fara vaxandi – og samtalið rétt að byrja.

Tengt efni

  • Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?

  • HönnunarMars lifnar á ný með glæsilegri og spennandi dagskrá

  • „Bestu verkin eru oft þau sem enginn tekur sérstaklega eftir“

Dagsetning
17. apríl 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Tölum_um_arkitektúr_og_hönnun
  • Greinar
  • GREINAR
  • Borgarskipulag
  • Borgarhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200