Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HönnunarMars lifnar á ný með glæsilegri og spennandi dagskrá

9. apríl 2026

Þegar dagarnir lengjast og vorið mætir til leiks þá kviknar líf í borginni. Hugmyndir fara á flug, samtöl verða til og nýjar tengingar myndast á milli fólks, hluta og staða. Nú er dagskrá HönnunarMars 2026 komin í loftið og það styttist í að Reykjavík umbreytist á ný í lifandi vettvang hönnunar og sköpunar dagana 6.-10. maí. 

Í ár er þema hátíðarinnar tengingar, þessi ósýnilegu en órjúfanlegu bönd sem liggja milli okkar allra. Í heimi sem er bæði ofurtengdur og á köflum aftengdur er sjónum beint að því sem raunverulega skiptir máli: þörfinni fyrir að tengjast. 

Yfir 100 sýningar og 150 viðburðir fléttast saman í lifandi heild þar sem um 400 skapandi hugar mætast.

Hátíðin breiðir úr sér um alla borg og umbreytir Reykjavík í vettvang uppgötvana. Sýningar og viðburðir fara meðal annars fram víða í miðborginni, Listasafni Reykjavíkur, Hönnunarsafni Íslands, Norræna húsinu, Grósku, Elliðaárstöð, Ásmundarsal, Þjóðminjasafni Íslands, RAFNAR bátasmiðju, Hafnartorg, Gamla bíó og fleiri stöðum. Einnig á óvæntari stöðum eins og í Vesturbæjarlaug, í World Class Laugum og við Ylströndina í Nauthólsvík. Þá er einnig spennandi dagskrá á þremur veitingastöðum í miðborginni.

–

Veislan hefst með DesignTalks í Silfurbergi í Hörpu þann 6. maí kl. 9:00 - 17:00 þar sem kraftmiklir alþjóðlegir og innlendir fyrirlesarar kveikja innblástur áður en hátíðin fer á fullt skrið. Þann 7. maí fer hátíðaropnun HönnunarMars fram í Gamla bíó kl. 17:00 og í kjölfarið opna sýningar um alla miðborg með viðburðum fram eftir kvöldi.

Í ár verður prentað sérstakt hátíðarkort á gamla mátann sem gerir gestum auðveldara fyrir að finna sitt uppáhald.

HönnunarMars er árleg uppskeruhátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs þar sem skapandi greinar mætast og nýjar tengingar verða til. Þar má finna allt frá tilraunakenndum verkefnum og nýsköpun til endurvinnslu, handverkshefða og djörfra hugmynda um framtíðina.

Dagskráin er opin öllum og býður upp á eitthvað fyrir hvert og eitt, hvort sem þú ert fagmanneskja í hönnun eða einfaldlega forvitin/n um hvernig hönnun mótar heiminn okkar.

Kynntu þér dagskrána hér að neðan og finndu eitthvað við þitt hæfi - Ert’að tengja?

Sjáumst á HönnunarMars!

Dagskrá HönnunarMars 2026

Dagskrá HönnunarMars 2026

Tengt efni

  • 1 Granary mætir á DesignTalks - eruð þið tilbúin að tengjast?

  • Hönnun hins ósýnilega á DesignTalks í ár með þverfaglega hönnunarteyminu Tertu og Elliðaárstöð

  • Enn bætist í flóru fyrirlesara: RANRA verður á DesignTalks

Dagsetning
9. apríl 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • DesignMarch

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200