Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnun hins ósýnilega á DesignTalks í ár með þverfaglega hönnunarteyminu Tertu og Elliðaárstöð

31. mars 2026

Magnea Guðmundsdóttir arkitekt og vísindamiðlarinn Margrét Hugadóttir segja frá því hvernig Elliðaárstöð hefur gert ósýnileg kerfi sýnileg og breytt þeim í upplifun sem tengir fólk, staði og samfélög, með leikinn að leiðarljósi. Verkefnið er handhafi Hönnunarverðlauna Íslands 2025.

Elliðaárstöð, sem áður var iðnaðarsvæði á stærsta græna svæði Reykjavíkur, hefur verið fengið nýtt líf og verið umbreytt í líflegan og heillandi áfangastað þar sem orka, fræðsla, menning og leikur fléttast saman á náttúrulegan hátt. Með vandaðri endurnýtingu mannvirkja hefur hin sögulega vatnsaflsvirkjum Elliðaárstöð tekið á sig nýja mynd og verið endursköpuð sem opið og aðlaðandi umhverfi þar sem byggingalist, landslag og frásögn renna saman í eina heildstæða og eftirminnilega upplifun. 

Elliðaárstöð er fyrrum iðnaðarsvæði á stærsta græna svæði Reykjavíkur, hefur verið umbreytt í líflegan áfangastað sem sameinar orku, nám, menningu og leik. Með varkárri endurnýtingu mannvirkja hefur hin sögulega vatnsaflsvirkjun Elliðaárstöð verið endursköpuð sem opið og aðlaðandi umhverfi þar sem byggingarlist, landslag og frásögn mætast.

Magnea er starfandi arkitekt, meðlimur í hönnunarhópnum Terta og meðstofnandi arkitektastofunnar Stiku. Hún hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum með samfélagsmiðaðri nálgun. Verk hennar spanna rannsóknir, sýningahönnun, borgar- og byggingarhönnun. Hún er virkur þáttakandi í umræðu um byggt umhverfi með greinum, erindum og hlaðvarpi og mikilvæg rödd. Magnea sat í Skipulags- og umhverfisráði Reykjavíkur 2014–2018.

Margrét er vísindamiðlari og fræðsluhönnuður sem leitast við að gera hið ósýnilega sýnilegt með frásögn, hönnun og skapandi miðlun. Hún starfar þar sem vísindi, hönnun og samfélag mætast og sameinar vísindi, hönnunarhugsun og upplifunahönnun til að skoða fortíð, nútíð og mögulegar framtíðir. Frá 2022 hefur hún þróað vísindamiðlun við Elliðaárstöð í Reykjavík, þar sem þúsundir gesta hafa lært um orku, vatn og ósýnileg kerfi borgarinnar.

Nú hafa allir fyrirlesarar DesignTalks verið kynntir og eru eftirfarandi:

Stefan Sagmeister

Dorte Mandrup

Hjalti Karlsson

Kristjana S Williams

Hönnunarteymið 1+1+1

RANRA

1 Granary

Elliðaárstöð

Þetta er viðburður sem enginn sem hefur áhuga á hönnun og arkitektúr vill missa af. Tryggðu þér miða á tix.is í dag.

Kaupa miða á DesignTalks!

Smelltu hér

Tengt efni

  • 1 Granary mætir á DesignTalks - eruð þið tilbúin að tengjast?

  • Enn bætist í flóru fyrirlesara: RANRA verður á DesignTalks

  • Hjalti Karlsson og Stefan Sagmeister á DesignTalks 2026

Dagsetning
31. mars 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200