Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

TAKK öll sömul fyrir vel heppnaðan og frábæran HönnunarMars!

18. maí 2026

Það er erfitt að setja í orð þá orku, sköpunarkraft og gleði sem einkenndi HönnunarMars í ár. Hátíðin var einstaklega glæsileg frá upphafi til enda og borgin bókstaflega iðaði af lífi, hugmyndum, samtölum, sýningum og upplifunum sem minntu okkur enn og aftur á hvað íslenskt hönnunarsamfélag er kraftmikið, fjölbreytt og lifandi.

Við viljum senda innilegar þakkir til allra sem tóku þátt í hátíðinni í ár, til hönnuða, arkitekta, listafólks, samstarfsaðila, sýnenda, fyrirtækja, sjálfboðaliða, gesta og allra þeirra sem lögðu sitt af mörkum til að gera HönnunarMars að því sem hún varð. Án ykkar væri þessi hátíð ekki möguleg.

–

Það var ótrúlegt að sjá hversu mikið var um að vera um alla borg. Sýningar, opnanir, viðburðir, fyrirlestrar, innsetningar, verslanir, vinnustofur og samtöl sköpuðu einstaka stemningu þar sem fólk kom saman til að fagna hönnun í sinni víðustu mynd. Það var sérstaklega ánægjulegt að finna hversu mikill áhugi var hjá almenningi, fagfólki og gestum allsstaðar að og einnig erlendis frá sem sóttu hátíðina heim og tóku þátt af heilum hug.

Hátíðin hófst með DesignTalks, ráðstefna um hönnun og arkitektúr, en uppselt var á viðburðinn í ár. Þar stigu á stokk stórstjörnurnar Dorte Mandrup arkitekt, Stefan Sagmeister grafískur hönnuður, Hjalti Karlsson grafískur hönnuður, Kristjana S William listakona og hönnuður, Magnea Guðmundsdóttir arkitekt og vísindamiðlarinn Margrét Hugadóttir, fatahönnunarfyrirtækið RANRA, hönnunarteymið 1+1+1 og Jorinde Croese, ritstjóri 1 Granarysem er alþjóðlegur vettvangur fyrir fatahönnuði og hönnunarmenntun.

HönnunarMars í ár sýndi með afgerandi hætti hvað hönnun getur verið öflugur vettvangur fyrir nýjar hugmyndir, samtal, gagnrýna hugsun og innblástur. Við fundum fyrir mikilli samstöðu og stolti innan samfélagsins og það var virkilega ánægjulegt að upplifa hversu margir lögðu hjarta sitt í verkefnin sín og sköpuðu upplifun sem verður lengi í minnum höfð.

Við erum óendanlega þakklát fyrir viðtökurnar, stuðninginn og þátttökuna. Takk fyrir að fylla borgina af sköpun, litum, forvitni og lífi.

Við hlökkum nú þegar til næsta árs!

Tengt efni

  • Dögg & Dýpi – í samtali við náttúruna á 3daysofdesign

  • Skapandi sunnudagur fyrir alla fjölskylduna á lokadegi HönnunarMars!

  • Gleðilegan HönnunarMars - hátíðin hefst í dag!

Dagsetning
18. maí 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • GREINAR
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200