Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hver á efnið? Líflegar umræður um gervigreind og höfundarétt á Tölum um

12. nóvember 2026

Gervigreindin er komin til að vera, en hver á það sem hún skapar og hvað verður um réttindi þeirra sem standa að baki hugmyndunum? Þessum stóru spurningum og mörgum fleiri var velt upp á Tölum um hönnun og arkitektúr í Grósku á miðvikudag.

Það var að venju notaleg morgunstemning í Grósku þar sem gestir komu saman yfir kaffibolla og bakkelsi áður en dagskráin hófst. Að þessu sinni var viðfangsefnið bæði brýnt og flókið enda hefur ör þróun gervigreindar vakið fjölmargar spurningar um eignarhald, frumleika og verðmæti skapandi starfa. Hvar liggja mörkin milli mannlegrar sköpunar og tækninnar og hvernig tryggjum við að réttindi skapandi fólks verði virt í síbreytilegum heimi?

Á svið stigu Hjálmar Gíslason, stofnandi og stjórnandi GRID, Hrafn Gunnarsson, sköpunarstjóri og stofnandi Brandenburg, Halldór Eiríksson arkitekt og formaður SAMARK og Anna Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons. Þau nálguðust viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum og vörpuðu ljósi á þær áskoranir og tækifæri sem fylgja aukinni notkun gervigreindar í skapandi greinum.

Í kjölfarið fóru fram pallborðsumræður þar sem Rán Tryggvadóttir höfundaréttarsérfræðingur bættist í hópinn. Lóa Björk Björnsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 1, stýrði umræðunum þar sem tekist var á við stórar spurningar um framtíð sköpunar, höfundarétt og ábyrgð í heimi þar sem tækninni fleygir fram.

Umræðuefnið er sannarlega þess eðlis að ekki er hægt að svara öllum spurningum á einni morgunstund. Það er þó einmitt tilgangurinn með Tölum um, að skapa vettvang fyrir samtal, ólík sjónarmið og nýjar hugmyndir. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs þakkar öllum sem tóku þátt og gestum kærlega fyrir komuna og áhugaverðan morgun!

Hér að neðan verður hægt að horfa á upptöku af viðburðinum.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir mánaðarlegum viðburðum undir yfirskriftinni Tölum um hönnun og arkitektúr í samstarfi við Vísindagarða Háskóla Íslands, Grósku og Bláa Lónið.

Tengt efni

  • Opið kall eftir sýningum í Norræna húsinu á HönnunarMars

  • Hugvit varpar ljósi á íslenska hönnun og arkitektúr

  • Einstakt tækifæri til starfsnáms á Feneyjatvíæringnum 2027

Dagsetning
12. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Tölum um
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200