Hugvit varpar ljósi á íslenska hönnun og arkitektúr

Íslensk hönnun og arkitektúr fá verðskuldaða athygli í heimildarþáttaröðinni Hugvit sem var í sýningu á RÚV fyrir stuttu. Í þáttunum er saga íslenskrar hönnunar rakin, allt frá frumkvöðlum fyrri tíma til nýrra kynslóða hönnuða. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fagnar framtakinu enda er mikilvægt, og alltaf jafn ánægjulegt, þegar íslensk hönnun og arkitektúr fá rými í fjölmiðlum.
Í þáttaröðinni er sjónum beint að áhrifamiklum íslenskum hönnuðum, verkum þeirra og því hvernig hugmyndir þeirra og sköpun hafa mótað umhverfi okkar, menningu og samfélag. Þættirnir veita áhugaverða innsýn í sögu íslenskrar hönnunar, þróun hennar og þann fjölbreytta sköpunarkraft sem einkennir greinina.
Meðal þeirra sem fjallað er um eru Sveinn Kjarval, einn af frumkvöðlum íslenskrar innanhússhönnunar, Halldór Hjálmarsson innanhússarkitekt, Ragnar Kjartansson, hönnuður og listamaður í Glit, og Sigurður Gústafsson arkitekt. Þá er einnig skyggnst inn í skapandi heim hönnunarstúdíósins Fléttu þar sem efniviður fær nýtt líf og hefðbundnar hugmyndir um hönnun eru endurskoðaðar.
Það skiptir miklu máli að segja sögur íslenskrar hönnunar, varðveita þekkingu og vekja athygli á þeim einstaklingum og hugmyndum sem hafa mótað greinina. Um leið er mikilvægt að sýna hvernig hönnun og arkitektúr snerta daglegt líf okkar allra og hvaða áhrif þau hafa á samfélagið.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hvetur öll áhugasöm um íslenska hönnun og arkitektúr til að kynna sér þessa áhugaverðu þáttaröð.
Dagskrárgerð er í höndum Jakobs Halldórssonar.


