Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr - Starfsnám í íslenska skálanum 2027

Óskað er eftir starfsnemum til að sitja yfir sýningunni SOAK: Rituals of Collective Belonging sem er framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2027, einum mikilvægasta viðburði á sviði arkitektúrs á heimsvísu. Á tvíæringnum koma saman aðilar sem vinna á vettvangi arkitektúrs og þróun manngerðs umhverfis, t.a.m. fulltrúar ríkja, sveitarfélaga, arkitektar og hönnuðir, sérfræðingar á sviði byggingartækni, framleiðendur byggingarefna, fjárfestar og þróunaraðilar bygginga svo einhverjir séu nefndir. Árið 2025 var fyrsta sinn sem Ísland tók þátt á Feneyjatvíæringnum með sýningunni Lavaforming. Þá voru 66 þjóðir sem tóku þátt og voru sýningagestir yfir 298.000 talsins og komu þeir allstaðar að úr heiminum.
Alls er verið að leita eftir 9 starfsnemum. Athugið að tímabil starfsnema eru mislöng.
Starfsnemar vinna að jafnaði 30 tíma á viku.
Tímabil
3. maí - 1. júlí 2027
3. maí -19. júlí 2027
3. maí - 6. ágúst 2027
3. maí - 30. ágúst 2027
2. júlí - 24. september 2027
20. júlí - 28. nóvember 2027
7. ágúst 2027 - 28. nóvember 2027
31. ágúst 2027 - 28. nóvember 2027
25. september 2027 - 28. nóvember 2027
Hverjir geta sótt um?
-Háskólanemar á öllum stigum háskólanáms.
Helstu verkefni og ábyrgð:
-Eftirlit með íslenska skálanum á meðan dvöl stendur
-Móttaka gesta og miðlun sýningar og upplýsingum um arkitektúr á Íslandi*
*Starfsnemar fá góða kynningu á íslenska skálanum frá teyminu sem stendur á bak við SOAK áður en farið er út í starfsnámið.
Hvað sem skal þróa í starfsnáminu:
-Miðla arkitektúr í ræðu og riti
-Færni í samskiptum
-Auka þekkingu á alþjóðlegum arkitektúr
Kostur starfsnámsins:
-Styrkir tengslanet
-Veitir alþjóðlega reynslu
-Byggir upp ferilskrá
Hæfniskröfur:
-Sjálfstæði, metnaður og drifkraftur.
-Hæfni og áhugi á að til að tjá sig í ræðu og riti um arkitektúr.
-Mjög góð enskukunnátta. Þekking á þriðja tungumáli er kostur.
Ábyrgð starfsnema:
-Útvega sér íbúðarhúsnæði
-Koma sér til og frá Feneyjum
Nemendur sækja um styrk til síns heimaskóla:
Fullur styrkur er:
Erasmus +: 756 Evrur mánaðarlega
Flugstyrkur: 395 Evrur
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs veitir eftirfarandi stuðning:
450 Evrur mánaðarlega
Aðgöngumiði á tvíæringinn yfir tímabilið.
Starfsnemar á vegum MH&A eru bæði slysa og tjónatryggðir á meðan dvöl stendur.
Opnunartími íslenska skálans:
Sumaropnun: 11:00-19:00
Haustopnun: 10:00-18:30 (frá 1. október-23. nóvember)
Lokað á mánudögum (fyrir utan einstaka daga)
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi í starfsnámið. Eins þarf að fylgja upplýsingar um hvaða tímabil er óskað eftir. Tímabilin mega vera fleiri en eitt sem óskað er eftir.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um!
Kynningarfundur á starfsnáminu fer fram miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12:30-13:00 í Bratta, Stakkahlíð 1, LHÍ.
Frekari upplýsingar veitir Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri Feneyjatvíæringsins í arkitektúr, gerdur@honnunarmidstod.is
Umsóknarfrestur rennur út 7. desember 2026. Umsóknir skal senda á netfangið gerdur@honnunarmidstod.is


