Eyjólfur Pálsson hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2026
Eyjólfur Pálsson, húsgagna- og innanhússhönnuður og stofnandi EPAL, hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar hönnunar. Í meira en hálfa öld hefur Eyjólfur verið ötull talsmaður hönnunar og lagt ríka áherslu á að auka veg hennar og virðingu í íslensku samfélagi.
Með ástríðu, frumkvæði og eldmóði hefur hann skapað íslenskri hönnun mikilvægan vettvang og stuðlað að því að koma verkum íslenskra hönnuða á framfæri, jafnt hér heima sem erlendis.
Það var ekkert plan B
Leið Eyjólfs Pálssonar inn í heim hönnunar hófst með námi í húsgagnasmíði, sem var á sínum tíma forsenda þess að komast inn í Kunsthåndværkerskolen í Kaupmannahöfn. „Ég fór bara og lærði húsgagnasmíði því þegar þú fórst í Kunsthåndværkerskolen var það skylda að vera húsgagnasmiður eða iðnaðarmaður til að komast í skólann,“ rifjar Eyjólfur upp.
Hann þreytti fjögur inntökupróf en áttaði sig fljótlega á því að samkeppnin var hörð. Af fimmtíu umsækjendum komust aðeins tólf inn og dönskukunnáttan var honum ekki endilega til framdráttar. „Ég var ekki nógu góður í dönsku og ég skildi varla allt. Svo uppgötvaði ég allt í einu að það voru fimmtíu í inntökuprófinu, tuttugu höfðu verið árið áður og það komust bara tólf inn.“
Þegar niðurstöðurnar lágu fyrir mætti Eyjólfur til að skoða listann yfir þá sem höfðu fengið inngöngu. „Ég mætti þarna um tíuleytið þegar listinn var tilbúinn og fór og leit yfir hann, eða þessa tólf sem komust inn og þá: Eyjólfur Pálsson! Sjúkk, ég var ekki með neitt plan B.“
Frá bílskúr yfir í EPAL
Að námi loknu starfaði Eyjólfur á teiknistofu í Danmörku áður en hann sneri aftur heim til Íslands. Þá tók hann að sér fjölbreytt verkefni á sviði innanhússhönnunar, meðal annars fyrir opinberar byggingar og fyrirtæki.
Árið 1975 stofnaði hann EPAL og hófst reksturinn í bílskúr við Hrísateig 47 í Reykjavík. Fyrstu árin starfaði Eyjólfur samhliða rekstrinum annars staðar og nýtti laun sín til að greiða starfsfólki og fjármagna vörukaup. Úr varð fyrirtæki sem hefur í hálfa öld verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenska og alþjóðlega hönnun.
Frá upphafi hefur hugmyndafræði EPAL byggst á vandaðri hönnun, gæðum og tímalausri fagurfræði. Eyjólfur hefur alla tíð lagt áherslu á að velja vörur af kostgæfni og hefur haft að leiðarljósi að fyrirtækið verði fremur best en stærst.
Predikar ástríðu sína opinberlega
Fyrir Eyjólfi hefur hönnun aldrei eingöngu snúist um fallega hluti. Hún er ástríða sem hann hefur viljað miðla til annarra og vekja almenning til umhugsunar um mikilvægi góðrar hönnunar. „Ef maður ætlar að tala stanslaust um hönnun þá er maður að predika ástríðu sína fyrir almenningi og það er mjög mikilvægt og þetta er mitt hjartans mál.“
Í gegnum árin hefur Eyjólfur byggt upp víðtækt tengslanet innan alþjóðlegs hönnunarheims og lagt sig fram um að nýta þá þekkingu og reynslu í þágu íslenskra hönnuða.
„Ástríðan gagnvart hönnun er rosalega mikil og þegar ég hef mikið þekkingarnet erlendis þá er alveg sjálfsagt að nota það og hjálpa og aðstoða aðra,“ segir Eyjólfur einlægur. Hann hefur jafnframt lagt áherslu á að íslensk hönnun sem nær fótfestu á erlendum mörkuðum fái einnig að njóta sín hér heima. „Þegar ég sé svo íslenska hönnun í framleiðslu erlendis þá reyni ég yfirleitt að fá hana til að geta kynnt hana hér fyrir Íslendingum.“
Virðing fyrir góðri hönnun
Eyjólfur hefur ekki aðeins talað fyrir nýrri hönnun heldur einnig mikilvægi þess að varðveita vandaða gripi og nýta þá áfram. Hann hefur hvatt fólk og fyrirtæki til að bera virðingu fyrir góðri hönnun og láta endingargæði ráða för fremur en síbreytilegar tískusveiflur.
Á löngum starfsferli hefur Eyjólfur sjálfur hannað innréttingar og rými sem hafa staðist tímans tönn. Í viðtali við Vísi árið 2023 rifjaði hann meðal annars upp hversu ánægjulegt það hefði verið að heimsækja barnaskólann í Vík og sjá að innréttingar og litaval sem hann hafði teiknað á sínum tíma væru enn óbreytt áratugum síðar.
Þessi virðing fyrir hönnun sem endist hefur verið leiðarljós í starfi hans og endurspeglast í þeirri hugmyndafræði sem EPAL hefur staðið fyrir frá upphafi.
Eins og að gera upp á milli barnanna sinna
Á löngum starfsferli hefur Eyjólfur kynnst ótal hönnuðum og verkum þeirra, bæði íslenskum og erlendum. En þegar kemur að því að velja eitt verk umfram annað vandast málið. „Ég er stundum spurður hvað mér finnist flottasta varan í búðinni. Ég segi alltaf að ég geti ekki svarað því. Klassíska svarið er að ég geti ekki gert upp á milli barnanna minna.“
Þegar Eyjólfur lítur yfir farinn veg er það ekki eitt tiltekið verk sem stendur upp úr, heldur fólkið sem hann hefur fengið að starfa með og tækifærin til að styðja við íslenska hönnun.
„Ég er stoltur af því að hafa fengið að vinna með hæfileikaríku fólki og hafa fengið tækifæri til að auka veg og virðingu íslenskrar hönnunar.“ Með eldmóði sínum, fagmennsku og óþreytandi stuðningi við íslenska hönnuði hefur Eyjólfur Pálsson sett mark sitt á íslenska hönnunarsögu. Framlag hans nær langt út fyrir rekstur EPAL og hefur haft varanleg áhrif á sýnileika, stöðu og þróun hönnunar á Íslandi.








Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember og er þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem veitti Eyjólfi verðlaunin.
Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands voru fyrst veitt árið 2019. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur náð einstökum árangri í starfi, verið áhrifamikill á sínu fagsviði eða skilað framúrskarandi ævistarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi.
Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu.


