Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fann það sem hana langaði að gera að eilífu

3. febrúar 2026

Hanna Dís Whitehead útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Design Academy Eindhoven í Hollandi árið 2011. Verk hennar eru staðsett á landamærum hönnunar, listar og handverks. Hún segir að hvatvísi og tilviljun hafi leitt sig á braut hönnunar sem varð til þess að hún fann það sem henni langaði að gera að eilífu. Nýverið opnaði hún tvær sýningar, Nytjar í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði og „Strálagning - Fyrsti hluti: Uppspretta“ í Hakk gallerý í Reykjavík.

Alltaf gaman að sýna nýjasta brallið

„Ég opnaði sýningu í Svavarssafni hér á Höfn miðvikudaginn 28. janúar. Hún heitir Nytjar. Það er samsýning mín, Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur og Steinunnar Önnudóttur. Við erum búnar að vinna ný verk upp úr listrænni rannsókn á safneign Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu. Sýningin er búin að vera í vinnslu í þrjú ár og því mjög ánægjulegt að vera loksins að sýna það, í kjölfarið kemur svo út útgáfa um verkefnið sem ég hlakka til að fá í hendurnar,“ segir Hanna Dís en hin sýningin hennar fer fram í Hakk gallerý við Óðinsgötu 1 í Reykjavík. 

„Í Hakk gallerý opnaði svo sýningin „Strálagning - Fyrsti hluti - Uppspretta“ föstudaginn 30. janúar en á þeirri sýningu er ég að kynna rannsóknir mínar og tilraunir með að nota strá í verk t.d með strálagningu. Ég hef aldrei sýnt svona heildstæða sýningu með strá í Reykjavík og er því mjög spennt að vinna með Hakk gallerý að kynna þennan fallega efnivið og aðferðirnar auk þess að sýna full unnin verk,” segir Hanna Dís.

Sýningin í Hakk gallerý er fyrsta af þremur þar sem Hanna Dís kynnir hvað hún er búin að vera vinna að hingað til, næstu sýningar verða svo hvað kemur í framhaldi af því. „Það er alltaf gaman að segja frá því sem maður er búin að vera bralla.”

Ætlaði upphaflega í kennaranám

Aðspurð hvað það var sem fékk hana út á braut hönnunar segist hún stjórnast mikið af hvatvísi. „Það var myndmenntarkennari í Fjölbraut í Ármúla þaðan sem ég lauk stúdentsprófi sem spurði mig hvað ég ætlaði að fara læra. Ég hafði mikinn áhuga á íslensku og var að spá í því og kennaranámi. En þá sagði hún einfaldlega „Varstu nokkuð búin að spá í hönnun“ og í framhaldinu fer ég að skoða það og verð strax rosa spennt,” segir Hanna Dís. 

„Ég fór því í hönnunarnámið í Iðnskólanum í Hafnarfirði sem var einfaldlega geggjað, við vorum með rosa flotta kennara. Þar fann ég að ég var búin að finna það sem mig langaði að gera að eilífu.”

Síðan lá leiðin til Hollands í nám. Hún segir námið hafa verið mjög gott en afskaplega stíft og alltaf einhver sem hafi grátið í hverri einustu yfirgerð auk þess sem margir voru felldir á hverri önn. Meðal fjöldi ára til að klára 4 ára nám voru því 5 ár. „Hollendingar rýna til gagns og það kennir manni auðvitað að vera gagnrýninn. Ég kynntist líka frábæru fólki sem ég er auðvitað ennþá í sambandi við. Það er kannski erfitt að alhæfa eitthvað um Hollendinga en ég myndi segja að húmorinn þeirra sé svartari en okkar og þeir eru mun hrifnari af hvers kyns skriffinsku.”

Röð tilviljana leiddu hana á sinn stað

Hanna Dís er fædd og að mestu uppalin í Vesturbænum með smá útúrdúr erlendis, t.d. Í Frakklandi og Þýskalandi. Í dag býr hún á Höfn í Hornafirði og tók í lok síðasta árs við starfi safnvarðar í Byggðasafninu. Hún kom fyrst á Hornafjörð til að fara í sumarvinnu á Jökulsárlóni fyrir um 20 árum sem var að hennar mati alls ekki amalegt enda einn fallegasti vinnustaður á landinu.

„Það var enn og aftur einhver tilviljun að ég endaði á Höfn. Ég ætlaði með vinkonu minni norður að vinna á hóteli en á síðustu stundu hætti starfsmaðurinn sem átti að leysa af við að hætta og mér var í staðinn redduð vinna fyrir austan,“ segir hún. „Ég hef líka búið og starfað í Reykjavík sem hönnuður en mér finnst bara miklu betra að vinna hér. Ég er með frábæra vinnuaðstöðu og meiri tíma þar sem ég þarf til dæmis ekki að bíða eina mínútu á rauðu ljósi þar sem það er hreinlega ekki eitt umferðarljós á svæðinu. Börnin komast á leikskóla eins árs og ég þarf ekki að pæla hvaða búð ég þarf að fara versla matvöru því það er bara ein og það sem er í matinn verður bara það sem er til þar í dag.”

Fyrir alþjóðlegan vinkil segir Hanna Dís það ekki skipta neinu máli hvort hún sé í póstnúmerinu 101 og 781. Í raun sé það heldur ólíklegt að hún hafi farið að vinna með stráin og annars flokks ull í Reykjavík þar sem þessir efniviðir séu ekki beint fyrir sjónum þar alla daga. Hún segir það skipta miklu máli að halda nánum tengslum við arkitektúr og hönnun á landsbyggðinni til að fá önnur sjónarhorn.

Tók við starfi safnvarðar Byggðasafnsins

Hanna Dís er búin að vera aðdáandi Byggðasafnsins síðan hún steig þar fyrst inn fyrir mörgum árum síðan. Starfið í Byggðasafninu segir hún fléttast fullkomlega inn í hennar áhugasvið. „Safneignin er svo spennandi þar sem margir munir eru smíðaðir af Hornfirðingum sjálfum þar sem þeir voru auðvitað lengi vel að sumu leyti frekar einangraðir. Fyrir hönnuð er svona safaríkt Byggðasafn paradís hugmynda, efniviða og svo eru sögurnar á bak við hlutina oft svo skemmtilegar,” segir hún. 

„Það er margt spennandi á döfinni hjá safninu en þar má helst nefna að við erum að vinna í að hanna nýja grunnsýningu um Hornafjörð frá Lóni út í Öræfi auk áherslusýningu um systkinin á Kvískerjum sem allir þurfa að þekkja. Kvískerja fólkið var ótrúlega áhugavert, menntaði sig sjálft í vísindum, tungumálum og fleiru. Við ætlum að byrja á því að kynna vel Hálfdán Björnsson sem var sjálfmenntaður náttúrufræðingur. Helgi Björnsson bróðir hans var ótrúlegur hönnuður og skapaði hluti sem eru hreinlega veisla að kynna sér. Fordómar gagnvart efnivið voru ekki til og því var alveg eins sjálfsagt að flysja fiskikar í sleifar eins og að smíða úr við.“

Innblástur úr bókum og bókasöfnum

Sjálf segist Hanna Dís nota eiginlega allan efnivið sem hún kemst í. Hún vinni mikið með staðbundna efniviði líkt og upp á síðkastið þegar hún komst í kornstrá af ökrum úr umhverfinu í kringum sig og einnig ull af bænum sem hún býr á. Afgangs efnivið sækir hún til að mynda í Húsasmiðjuna á Höfn og fékk svo gefins glerverkstæði um daginn og hefur verið að byrja að vinna með það. 

„Ég hef gaman af allri smíðavinnu og að búa hluti til. Ég hef líka unnið með allskyns textíl, leir og málm. Málmur var uppáhalds smíðaefniviðurinn minn en ég hef eiginlega ekki komið nálægt neinni suðuvinnu í tíu ár þarf að fara rifja upp þá takta aftur- það væri gaman. Ég er að fara á glernámskeið í Glass factory Kosta Boda eftir tvær vikur og hlakka mikið til,” segir Hanna Dís. „Ég er alltaf að fletta í bókum, safna bókum og fer á bókasöfn. Hvert skipti sem ég fer í nýtt verkefni þá skoða ég vel valdar bækur úr safninu mínu og sé þær með nýjum augum,” segir Hanna Dís aðspurð um hvar hún sæki innblástur. Uppáhaldsbækurnar eru allar bækur um safneign Victoria and Albert museum, Furniture society  og bækur um mis algengt handverk eru í uppáhaldi.

Svona að lokum, hvað er það sem þú ert stoltust af ef við lítum yfir farinn veg?

„Mér finnst ég rétt vera að byrja að komast í gott stuð! Það er búið að taka mig langan tíma að læra ýmislegt sem mér finnst ég vera ná góðum tökum á núna. Barnahrúgan mín er farin að geta sett samloku í grillið sjálf og ég er að gera allskonar sem mér finnst skemmtilegt,” segir Hanna Dís og hlær. „Kannski er ég bara stoltust af því að vera ennþá að og vera samkvæm sjálfri mér í því sem ég geri því það eru margir skiljanlega sem fara að gera eitthvað annað.”

Í mars mun Hanna Dís taka þátt í skemmtilegri samsýningu í MAD safninu í Berlín en sýningin ber yfirskriftina „Home Sweet Home“. Á sýningunni sem er samstýrð af Connie Husser hafa valdir hönnuðir verið beðnir um að hanna fuglahús með sínum stíl. „Það er geggjað að fá að sýna með svona flottum hóp af hönnuðum,” segir hún að lokum. 

Heimasíða Hönnu

Heimasíðan Hönnu

Tengt efni

  • Spenntari að leyfa Íslendingum að sjá sýninguna

  • „Fyrir mér er hönnun svolítið eins og skáldskapur“

  • Vonandi bæta dag einhvers og gera heiminn aðeins fallegri

Dagsetning
3. febrúar 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hanna Dís Whitehead
  • Hönnuður í fókus
  • Vöruhönnun
  • Viðtal

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200