Fjölmenni í sumargleði AÍ í Elliðaárstöð

Vel var mætt í sumargleði AÍ sem haldin var 12. júní með leiðsögn um nýuppgerða Elliðaárstöð. Á fjórða tug hressra arkitekta mætti í leiðsögnina og fögnuðinn sem haldinn var í tilefni nýs heiðursfélaga AÍ: Þorsteins Guðmundssonar, arkitekts og leikara.
Magnea Guðmundsdóttir, Brynhildur Pálsdóttur og Eva Huld Friðriksdóttur leiddu leiðsögn um allt svæðið, bæði úti og inni. Þær eru allar meðlimir í þverfaglega hönnunarteyminu Terta sem hefur starfað síðan árið 2019 að hönnun og endurnýjun Elliðaárstöðvar sem nýs áfangastaðar með almenningsrými, gestastofu, veitingastað og fræðslu.
Tillaga þeirra Með orkunni úr ánni er tertan bökuð bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um sögu- og tæknisýningu í Elliðaárdal sem Orkuveita Reykjavíkur stóð fyrir í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Leiðsögninni lauk í Uppsprettu, fyrirlestrarsal Elliðaárstöðvar. Þar var Þorsteinn Gunnarsson gerður að heiðursfélaga Arkitektafélags Íslands og afhent blóm og skjal því til staðfestingar. , þar sem fólki var boðið upp á drykk og Sigríður Maack, stjórnarkona, flutti ræðu um framlag Þorsteins til byggingarlistarinnar á Íslandi.















