Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Ákvarðanir aðalfundar Arkitektafélags Íslands 2026

24. mars 2026

Fjölmennt var á aðalfundi Arkitektafélags Íslands sem haldinn var þann 12. mars í Grósku. Fundinum var einnig streymt á Teams.
Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf. Farið var yfir skýrslur stjórnar og nefnda, ársreikninga félagsins og rekstraráætlun fyrir komandi ár.

Afmælisár og viðburðir framundan
Í ár eru 90 ár frá stofnun Arkitektafélags Íslands. Í tilefni af því og 70 ára stjórnmálasambandi Íslands og Japans mun japanski arkitektinn Kengo Kuma halda fyrirlestur í Grósku 30. apríl næstkomandi.

Áherslur og staða félagsins
Í skýrslu stjórnar kom fram að fjárhagsstaða félagsins er krefjandi og að unnið sé markvisst að hagræðingu í rekstri og nýjum tekjuöflunarleiðum.

Árgjald
Samþykkt var að hækka árgjald í samræmi við launavísitölu.

Kosið var um trúnaðarstöður hjá Arkitektafélaginu og fóru kosningar sem hér segir:

Stjórn félagsins bauð sig fram til áframhaldandi setu til eins árs og var það samþykkt.

Stjórn:
Helga Guðrún Vilmundardóttir, formaður
Sigríður Maack, gjaldkeri
Jóhanna Höeg Sigurðardóttir, ritari

Skoðunarmenn reikninga: Halldóra Vífilsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir

Samkeppnisnefnd: Falk Krüger (formaður), Björn Guðbrandsson og Hildur Gunnlaugsdóttir

Menntamálanefnd: Bryndís Alfreðsdóttir (formaður) og Auður Hreiðarsdóttir

Framþróunarnefnd: Kristján Örn Kjartansson (formaður), Anna Karlsdóttir, Ólafur Ólason og Sigrún Guðný Halldórsdóttir

Siðanefnd: Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Jóhannes Þórðarson og Sólveig Berg

Dagskrárnefnd: Kristjana Margrét Sigurðardóttir (formaður), Bjarki Þór Wium, Guðný Arna Eggertsdóttir og Jarþrúður Iða Másdóttir

Orða- og ritstjórnarnefnd: Guðrún Harðardóttir (formaður), Bjarki Gunnar Halldórsson og Fanney Margrét Eiríksdóttir

Laganefnd: Engin framboð bárust í laganefnd á fundinum. Tökum enn á móti framboðum í laganefnd.

Stjórn Minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar: Aðalheiður Atladóttir, Garðar Snæbjörnsson, Sigríður Maack (f.h. formanns AÍ) og Jóna Hlíf Halldórsdóttir forseti BÍL.

Kosning annarra fulltrúa í samtök og ráð sem félagið er aðili að:

BÍL: Formaður AÍ, Helga Guðrún Vilmundardóttir
Hússafriðunarnefnd: Sigbjörn Kjartansson (skipun 2025-2029)
Höfundarréttarráð: Halldór Eiríksson
Fulltrúaráð Listahátíðar: Marcós Zótes (skipan 2025-2029)
Bakland LHÍ: Halldóra Vífilsdóttir
Hluthafahópur MH&A: Jóhanna Höeg Sigurðardóttir

Ályktanir fundarins
Tvær ályktanir voru samþykktar á fundinum.

  1. Annars vegar lýsti aðalfundur áhyggjum af víðtæku framsali höfundarréttar í rammasamningi Reykjavíkurborgar og hvatti til sanngjarnari samningsskilmála.
  2. Hins vegar var skorað á stjórnvöld að endurskoða skráningu skipulagsráðgjafa þannig að menntun og reynsla arkitekta verði metin að verðleikum.

Aðalfundargögn
Skýrslu stjórnar og nefnda má lesa hér.
Fundargerð aðalfundar má nálgast hér.
Ársreikningur 2025 er aðgengilegur hér.

Í lok fundar héldu Borghildur Sturludóttir og Hulda Hallgrímsdóttir hvetjandi hugvekjur um arkitektúr 2026.

Kvöldinu lauk með árshátíð AÍ þar sem yfir 100 manns komu saman og nutu góðrar samveru frameftir kvöldi. Kærar þakkir fá Teiknistofan Tröð, Plan Studio, Skala Arkitektar og Esja arkitektar fyrir að taka svona vel á móti okkur.

Helga Guðrún formaður AÍ
Sigríður Maack gjadkeri AÍ
Hrólfur Karl Cela ber upp ályktanir
Borghildur Sturludóttir með hugvekju um arkitektúr 2026
Hulda Hallgrímsdóttir með hugvekju um arkitektúr 2026
Árshátíð AÍ í Gróðurhúsinu Grósku
Teiknistofan Tröð, Plan Studio, Skala Arkitekta og Esja arkitektar tóku á móti félagsfólki í Gróðurhúsinu í Grósku þar sem stofur þeirra eru staðsettar

Tengt efni

  • Aðalfundur Arkitektafélags Íslands 2026

  • Aðalfundur AÍ - áminning & frekari upplýsingar

Dagsetning
24. mars 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Architecture

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200