Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Flothetta í samstarf við Bláa Lónið

21. febrúar 2022

Bláa Lónið og fyrirtækið Flothetta hafa hafið samstarf um einstakar flotmeðferðir þar sem farið er djúpt inn í heim vatnsslökunar. Flotmeðferð er afurð fyrirtækisins Flothettu og er djúpslakandi upplifunarhönnun, þróuð út frá flotbúnaði Flothettu. Flotmeðferð Flothettu hlaut tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2020.

Ferlið er úthugsað með það að leiðarljósi að þáttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan og endurnæringu. Sérstaða flotsins í Bláa Lóninu byggist einnig á þeim virku efnum lónsins, en kísill, þörungar og steinefnin í vatninu hámarka upplifunina með endurnærandi áhrifum. Umsjón verður í höndum viðurkenndra flotmeðferðaraðila sem allir hafa lokið námskeiði í umsjón flotmeðferða og uppfylla kröfur um þekkingu og öryggi í vatnsmeðferðarvinnu. 

Flotbúnaðurinn er hannaður af Unni Valdísi Kristjánsdóttur, vöruhönnuði og frumkvöðli í vatnsmeðferðum hér á landi og gengur hann undir nafninu Flothetta. Hugmyndafræði Flothettu er innblásið af áhuga Unnar Valdísar að vinna með heita vatnið til heilsueflingar, slökunar og í lækningaskyni. Flothettan kom fyrst á markað árið 2012 og frá þeim tíma hefur áhuginn á floti aukist og það fest sig í sessi hér á landi. Samstarfið við Bláa Lónið er síðan framfaraskref, því enginn annar baðstaður býður upp á flotmeðferðir af sama metnaði og fagmennsku. Það má því segja að upplifunin sé einstök svo ekki sé talað um einstakt umhverfi og eiginleikar Bláa Lóns vatnsins.

Boðið verður upp á þrenns konar upplifanir í Bláa Lóninu: einstaklingsflot, paraflot og hópaflot. Flotbúnaður Flothettu sér um að halda þátttakendum á floti á meðan meðferðaraðilinn veitir mjúka meðhöndlun og nudd á meðan flotið er. Flotmeðferð er djúpt og heilandi ferðalag þar sem gestir eru leiddir af mýkt og öryggi inn í kyrrð og eftirgjöf þyngdarleysis. Allt miðar þetta að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu. Lögð er áhersla á algjöra endurnæringu í gegnum djúpt slökunarástand í þyngdarleysinu og að losa um alla spennu líkamans með mjúkum teygjum, togi og nuddi.

„Við erum mjög spennt og ánægð með samstarfið við Flothettu. Flotmeðferðum í Bláa Lóninu hefur nú þegar verið sýndur mikill áhugi og eru þær einstök viðbót við þær meðferðir í vatni sem við bjóðum upp á í Bláa Lóninu,“ segir Eyrún Sif Eggertsdóttir, forstöðumaður baðstaða og verslana hjá Bláa Lóninu. 

Myndband sem var gert fyrir Hönnunarverðlaun Íslands 2020

–

Framleiðsla og leikstjórn: Blóð Stúdíó

Heimasíða Flothettu

Tengt efni

  • Ertu að leita að hönnuði eða arkitekt?

  • Flotmeðferð eftir Flothettu tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020

  • Frumgerðir, Rúststeinar, hampur og íslenskt brimbretti meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

Dagsetning
21. febrúar 2022
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200