Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

FÓLK og Tinna Gunnarsdóttir hefja hönnunarsamstarf

18. nóvember 2020
Frá undirritun, Ragna Sara stofnandi FÓLKs til vinstri og Tinna Gunnarsdóttir til hægri, undirrita samning um samstarf í Reykjavík.

Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður og prófessor við Hönnunardeild Listaháskóla Íslands og hönnunarmerkið FÓLK Reykjavík hafa gert með sér samstarfsamning um útgáfu hönnunar Tinnu alþjóðlega.

Tinna er fjórði íslenski hönnuðurinn sem FÓLK starfar með en fyrirtækið hefur undanfarin ár byggt upp framleiðsluþekkingu og markaðs- og söluinnviði alþjóðlega á þróun og dreifingu íslenskrar hönnunar.

Tinna er prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands og með Mastersgráðu í iðnhönnun frá Domus Academy á Ítalíu, Listrannsóknarmaster frá Brighton og stundar nú doktorsnám í menningarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem fagstjóri og prófessor við vöruhönnun við Listaháskóla Íslands í áratug. Tinna hefur setið í fjölda stjórna og dómnefnda, hún hefur skrifað greinar og bókakafla, ritstýrt og átt sæti í ritnefndum. Tinna hefur hlotið fjölda viðurkenninga og styrkja fyrir verk sín og verk eftir hana eru í eigu íslenskra og erlendra lista- og hönnunarsafna. Tinna hefur tekið þátt í fjölda hönnunarsýninga, hér heima og erlendis.

Tinna nýtir hönnunarrannsóknir og nytjahluti hversdagsins til að skoða umhverfi sitt, hvort sem það varðar einkarými heimilisins eða í náttúrulegu samhengi. Hún setur efni og tækni í óvæntar aðstæður og skapar þannig fersk sjónarhorn, útvíkkaða upplifun, skemmtilega afbakað samhengi. Íslenskt landslag hefur haft stór áhrif á meðvitund hennar og rýmisskilning en þeim miðlar hún í gegnum efnislæga hluti.

Það er mikill fengur fyrir okkur hjá FÓLKi að hefja samstarf við Tinnu. Tinna hefur byggt upp afar áhugaverðan feril á sviði hönnunar yfir lengri tíma en kemur þó stöðugt með ferska nálgun og sýn á efnisheiminn. Við hlökkum til að vinna með henni að frekari þróun á íslenskri hönnun á næstunni.

Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs.

Tinna Gunnarsdóttir, hönnuður
folkreykjavik
folkreykjavik

Um FÓLK Reykjavík

FÓLK var stofnað árið 2017 sem útgefandi og vörumerki fyrir íslenska hönnun á heimsvísu. FÓLK á frumkvæði og styður hönnun og framleiðslu á vörum sem hafa sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi. Fyrirtækið hefur undanfarin ár byggt upp framleiðsluþekkingu og sölu og markaðsinnviði alþjóðlega og er fyrirtækinu ætlað að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði alþjóðlega. Vörur fyrirtækisins hafa verið sýndar á sýningum í Stokkhólmi og París og hefur FÓLK nýverið tryggt sér samninga við dreifingaraðila fyrir sex lönd og nú nýverið tók Finnish Design Shop ein stærsta vefverslun Norðurlandanna vörur FÓLKs í sölu..

FÓLK hefur nú þegar þróað og framleitt íslenska hönnun í samstarfi við hönnuðina Jón Helga Hólmgeirsson einn stofnenda Genki og handhafa Hönnunarverðlauna Íslands 2019, Ólínu Rögnudóttur og Theodóru Alfreðsdóttur sem tilnefnd var til Norrænu Formex verðlaunanna árið 2019.

Tengt efni

  • VARMA opnar verslun í samstarfi við hönnuði á Skólavörðustíg

  • HönnunarMars leitar að upplifunarhönnuði fyrir hátíðina í maí 2021

  • Bók Péturs H. Ármannsonar um Guðjón Samúelsson, húsameistara er komin út

  • Aðalfundur FHI

  • Samkeppni um ljósverk fyrir Vetrarhátíð 2021

  • The Nordic Report 03 - víðtæk samantekt um sjálfbæra neyslu og framleiðslu á Norðurlöndum

Dagsetning
18. nóvember 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Vöruhönnun
  • Íslensk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200