Guðmundur Lúðvík hannar klappstól fyrir HAY

Danska hönnunar-og húsgagnafyrirtækið HAY kynnti á hönnunarhátíðinni 3daysofdesign sem haldin var í Kaupmannahöfn 6.-10. júní sl. nýjan klappstól (backflip) eftir hönnuðinn Guðmund Lúðvík. Guðmundur Lúðvík Grétarsson (Gudmundur Ludvik) er einn af afkastamestu hönnuðum okkar Íslendinga. Hann hefur verið búsettur í Danmörku síðustu áratugi og hefur vakið mikla athygli fyrir hönnun sína en hann hefur hannað húsgögn fyrir fjölmörg hönnunarfyrirtæki.
Í tilkynningu frá Hay kemur fram að markmiðið á bak við stólinn var að hanna mjög þægilegan stól sem væri samanbrjótanlegur. Hingað til hafa klappstólar verið hannaðir fyrst og fremst með geymslu og flutning í huga, oft á kostnað þæginda, og var hugmyndin með þessum stól að breyta þeirri nálgun. Hann er ekki tímabundið sæti sem auðvelt er að flytja heldur góður stóll. Hann er hugsaður jafn við matarboð, í fundarherbergi, á veitingastað eða í stærra opinberu rými.

Stóllinn var mörg ár í þróun, prófunum og endurbótum. Hver ákvörðun í þróunarferlinu mótaðist af samspili þæginda, smíði og hreyfingar. Niðurstaðan er stóll sem færist áreynslulaust á milli notkunar og geymslu, án þess að fórna þeim þægindum og stíl sem vænst er af húsgagni til daglegrar notkunar.
Klappstóllinn er framleiddur úr gegnheilum við og fæst einnig í ólíkum litatilbrigðum. Sérhönnuð veggfesting, er einnig fáanleg í svörtu eða með náttúrulegri viðaráferð, en hún býður upp á stílhreina geymslulausn sem ber einn eða tvö samanbrotna stóla upp á vegg.
Vefsíða Gudmundur Ludvik



