Gunnþórunn Jónsdóttir ráðin kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Gunnþórunn Jónsdóttir hefur verið ráðin kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og hóf hún störf 12. janúar sl. Í starfinu mun hún halda utan um, móta og bera ábyrgð á öllum kynningarmálum Miðstöðvarinnar, þar á meðal HönnunarMars, einnar stærstu hönnunarhátíðar landsins.
Gunnþórunn er menntuð í stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og býr að víðtækri reynslu úr fjölmiðlum, kvikmyndagerð og skapandi greinum. Hún starfaði í fjölmiðlum í um áratug og lengst af hjá Morgunblaðinu í ýmsum ábyrgðarstöðum. Síðar hjá Fréttablaðinu, þar sem hún stýrði fréttakaflanum Tilverunni. Hún hefur einnig starfað við kvikmyndaframleiðslu, dagskrárgerð og þáttastjórnun og komið víða við í félagsstörfum, meðal annars sem meðstofnandi Exempla, tengslanet ungra kvenna í ábyrgðarstöðum.
„Ég er afar spennt að hefja störf hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs með frábæru og metnaðarfullu teymi. Íslenskt hönnunarlíf er öflugt og HönnunarMars er gríðarlega mikilvæg uppskeruhátíð sem endurspeglar þá miklu hæfileika og sköpunarkraft sem býr í íslensku samfélagi.“

