Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hlutir gerast í Norðri

14. júlí 2023

Dagana 28. - 30. september fer fram í fyrsta sinn hátíð vöruhönnunar á Húsavík og nágrenni. Þar mun almenningi gefast kostur á að kynna sér fag hönnuðarinns.  Áhersla verður lögð á mikilvægi vöruhönnunar í samfélaginu og hvernig hún hefur mótað okkar daglega líf.

Hátíðin ber yfirskriftina Hönnunarþing þar sem vöruhönnuðir koma saman víðsvegar að, sýna verk sín, halda fyrirlestra og gleðjast saman.  

Hraðið, miðstöð nýsköpunar á Húsavík eru forsprakki þessarar metnaðarfullu hátíðar þar sem tvinnuð verður saman fagleg þekking á faginu og framúrskarandi tæknilegum aðbúnaði Hraðsins þar sem einu best búna Fab labi landsins hefur verið komið á legg.

Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af sýningum bæði innlendra og erlendra hönnuða ásamnt fræðandi fyrirlestrum á borð við kynningu á sögu vöruhönnunar,  fyrirlestrum um verk og feril hönnuða, mikilvægi fagsins í daglegu lífi, snertifleti vöruhönnunar og gervigreinda og kynningu Listaháskóla Íslands á stefnu og kennslu fagsins svo eitthvað sé nefnt.

Vinnustofur og námskeið verða haldin fyrir börn og fullorðna. Einnig munu nemar í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands vinna að verkefni á svæðinu og sýna afrakstur þess á hátíðinni.  

Viðburðir á borð við hönnunar pub quiz, hrað fyrirlestur um misheppnaða hönnun, fræðsla og pop up í Sjóböðunum ásamt tónleikum og gleðskap munu gera hátíðina líflega og skemmtilega. Þeir sem sækja fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar gefst einnig fullkomið tækifæri til að virða fyrir sér hinar fögru náttúruperlur svæðisins en ekki síst nokkrar af hönnunar perlum svæðisins á borð við Sjóböðin á Húsavík, Jarðböðin í Mývatnssveit og hin nýju Skógarböð á Akureyri.  

Skemmtileg hátið sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Frekari upplýsingar má nálgast hér

Frekari upplýsingar má nálgast hér

Tengt efni

  • Hönnunarverðlaun Íslands veitt í tíunda sinn

  • Arkitektafélag Íslands og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs á UIA2023

  • Horfðu á DesignTalks 2023

Dagsetning
14. júlí 2023

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Vöruhönnun
  • Hönnunarþing

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200