Horfðu á DesignTalks 2023
Alþjóðlega ráðstefnan og lykilviðburður HönnunarMars, DesignTalks fór fram fyrir fullu húsi í Hörpu, þann 3. maí síðastliðinn. Ráðstefnan leitaði svara við spurningunni Hvað nú? með áhrifamiklum erindum frá fjölbreyttum hópi hönnuða, arkitekta og listamanna sem nálgast núið og framtíðina á skapandi hátt. DesignTalks var streymt í beinni hjá hönnunarmiðlinum Dezeen og hér er hægt að horfa á ráðstefnuna í heild sinni.
Heilandi hönnun, hönnun sem byggir á samstarfi við bakteríur, nýsköpun hráefna, hönnun sem tekst á við erfiðar aðstæður á stríðssvæðum, róttækur landslagsarkitektúr með villta náttúru í forgrunni, þverfagleg hönnun með áherslu á leikgleði og samveru, valdeflandi hönnun sem vekur von og ögrandi arkitektúr er meðal þess sem tekið var fyrir á DesignTalks 2023.
Horfðu á DesignTalks 2023 hér:
Hluti I & II
I: Hvað nú? Tölum um sköpunarkraftinn
Frammi fyrir hamfarahlýnun og stríðsástandi spyrjum við hvernig hægt sé að láta reyna á sköpunarkraftinn núna? Við skoðum dæmi um hönnuði sem tekst á við erfiðar aðstæður á stríðshrjáðum svæðum, listamann sem nálgast brýnar loftslagsáskoranir og könnum eðli sköpunarkraftsins sjálfs. Hvernig getum við hvatt til hugrekkis og vakið von með hönnun? Hvernig fáum við fólk til liðs við móður náttúru?
Fram komu: Michael Hendrix, alþjóðlegur hönnunarstjóri og meðeigandi IDEO, Refik Anadol, listamaður, leikstjóri og brautryðjandi í fagurfræði gervigreindar, Liam Young, sci-fi arkitekt, leikstjóri og framleiðandi Pavel Vrzheshch, stofnandi og listrænn stjórnandi úkraínsku auglýsingastofunnar Banda.
II: Hvað nú? Tölum um grunnþarfirnar
Fleira og fleira fólk á í erfiðleikum með að sinna grunnþörfunum, hefur skert aðgengi að mat og skjóli og náttúruauðlindir fara þverrandi. Við spyrjum: hvað nú? Felst lausnin í að umbreyta úreltum kerfum? Nýsköpun hráefna? Hvernig á að byggja og endurbyggja fyrir alla? Og framleiða föt og vörur á siðferðilegan og sjálfbæran hátt?
Fram komu: Kjartan Örn Ólafsson, CEO hjá Transition Labs, Ingvar Helgason, hönnuður og stofnandi Vitralabs, Bjarney Harðardóttir, CEO og eigandi 66°Norður, Thomas Pausz, hönnuður, listamaður og rannsakandi.
Hluti III & IV
III: Hvað nú? Tölum um lífið
Heimurinn er að jafna sig eftir heimsfaraldur sem hafði varanleg áhrif á heilsu margra og einmanaleika en mögulega einnig á viðhorf til þess sem raunverulega skiptir máli. Í þriðja hluta er fjallað um heilsu og annars konar auð. Hvað nú? Hönnun heilandi umhverfis? Borgarlandslag þar sem náttúran gegnir lykilhlutverki? Hvernig hönnum við af virðingu, fyrir jafnrétti, þátttöku og inngildingu fyrir öll? Hvert er gildi hönnunarhugsunar við endurhönnun lífsins?
Fram komu: Peter Veenstra, landslagsarkitek og meðeigandi LOLA landscape Architects, Sigríður Sunna Reynisdóttir, listrænn stjórnandi og stofnandi ÞYKJÓ, Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri brand, hönnunar- og nýsköpunarsviðs Bláa lónsins. Meðeigandi í Design Group Italia, Lee Baker, stofnandi Graphic Rewilding.
IV: Og hvað svo? Tölum um sögur
Fjórði og síðasti hluti dagsins fjallar um framtíðina, sem er óvissari og opnari en nokkru sinni fyrr. Við spyrjum hver ætli að skapa hana? Skoðum frásagnaraðferðir þvert á miðla sem eitt öflugasta verkfæri hins skapandi huga og tengsl náttúru, tækni og vitsmuna. Getur hönnun hjálpað okkur að njóta góðs af framförum í vísindum og tækni? Eigum við að vinna meira með bakteríum og örverum? Taka stjórn á sögunni, framtíðinni? Eða halla okkur aftur og láta gervigreindina gera það?
Fram komu: Natsai Audrey Chieza, stofnandi og framkvæmdarstjóri Faber Futures, Paola Antonelli, yfirsýningarstjóri arkitektúrs og hönnunar hjá MoMA og stofnandi Design Emergency.
Listrænn stjórnandi DesignTalks 2023 var Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður, framleiðandi var Þura Stína Kristleifsdóttir, kynnir var Guðrún Sóley Gestsdóttir og stjórnandi umræðna var Tom Ravenscroft, ritstjóri hjá Dezeen.
DesignTalks varpar ljósi á mikilvægi hönnunar og arkitektúrs í samfélagslegum og hnattrænum breytingum og tekst á við áskoranir og tækifæri líðandi stundar. Ráðstefnan hefur verið einn af lykilviðburðum HönnunarMars frá upphafi þar sem fjöldi leiðtoga á sviði hönnunar og arkitektúrs hafa komið fram og veitt gestum ómetanlegan innblástur.
DesignTalks 2023 var m.a. styrkt af Nordic Talksog Íslandsstofu.