Væntanlegar breytingar á skilum lífsferilsgreininga (LCA)

HMS vill vekja athygli væntanlegum breytingum á skilum lífsferilsgreininga (LCA) fyrir umsóknir um byggingarleyfi.
Umsóknarviðmót byggingarleyfa HMS mun taka breytingum 2. mars nk. þegar unnt verður að skila lífsferilsgreiningu (LCA) í umsóknarferlinu sjálfu og þannig verða skil á LCA gerð að forsendu innsendingar umsóknar um byggingarleyfi inni í viðmótinu. Með þessum hætti er stuðlað að markmiðum HMS um að samræma og einfalda byggingarleyfisumsóknir á landsvísu en nú þegar hafa 16 sveitarfélög, með um helming íbúa landsins, innleitt umsóknarviðmót byggingarleyfa og fjölgar stöðugt. Fyrir sveitarfélög sem eru ekki komin inn í umsóknarviðmótið og fyrir eldri umsóknir byggingarleyfa er enn hægt að skila inn lífsferilsgreiningu með sama hætti og áður í gegnum LCA skilagáttina á vef HMS.
Hér má finna upplýsingar um hvaða sveitarfélög hafa nú þegar tekið upp notkun á nýja umsóknarviðmótinu.
Spurningar og ábendingar má endilega senda á lca@hms.is.

