Höfðinginn snýr aftur í fullri mynd

Epal hefur hafið framleiðslu á borði eftir Gunnar H. Guðmundsson, einn af frumkvöðlum íslenskrar húsgagnahönnunar. Borðið var upphaflega hannað í stíl við hinn þekkta Höfðingja, stól Gunnars frá árinu 1961, og eru húsgögnin nú aftur fáanleg saman. Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, segir mikilvægt að halda íslenskri hönnunarsögu á lofti og gera verk fyrri kynslóða aðgengileg almenningi.
Höfðinginn er eitt þekktasta verk Gunnars H. Guðmundssonar (1922–2004), húsgagnahönnuðar og arkitekts. Stóllinn hlaut verðlaun á hönnunar- og handverkssýningu í München árið 1961 og vakti síðar athygli á húsgagnasýningu í London. Gunnar hannaði einnig borð í stíl við stólinn og voru bæði húsgögnin upphaflega framleidd hjá Kristjáni Siggeirssyni.
Að sögn Eyjólfs kviknaði hugmyndin að endurframleiðslunni út frá áhuga hans á íslenskri hönnun og sögu hennar. „Það er mikilvægt að minna nýjar kynslóðir á það besta og áhugaverðasta sem gert var í hönnun á Íslandi á árum áður. Ein af bestu leiðunum er að gera hönnun liðins tíma sýnilega, eins og gert er með framleiðslu á þessu borði Gunnars og stól hans,“ segir hann. Eyjólfur segir hönnun Gunnars tímalausa og að einfaldleikinn feli í sér mikla nákvæmni og hugvit.
„Hér er á ferð tímalaus gæðahönnun. Hún á jafnmikið erindi nú og fyrir rúmum sextíu árum. Viðtökurnar sýna það,“ segir hann og telur jafnframt að endurframleiðsla eldri verka gegni mikilvægu hlutverki í að varðveita íslenska hönnunarsögu og færa hana nær almenningi. „Það er ljóst að eldri hönnun líður nokkuð fyrir það að vera ekki nægilega aðgengileg. Almenningur getur vissulega farið á söfn og sýningar og séð hana þar og skoðað bækur. Það að endurvekja hönnun á borð við Höfðingjann færir þessa hönnun beint til almennings.“
Eyjólfur segir ánægjulegt að sjá hversu vel fólk taki húsgögnunum og hversu stolt það sé af því að eignast íslenska hönnunarsögu. „Hönnunarsagan á að vera hluti af umhverfi okkar. Það að endurvekja eldri íslenska hönnun gerir að verkum að hönnunarsagan færist nær okkur, en er ekki fjarlæg,“ segir Eyjólfur að lokum.
Borðið er úr olíuborinni eik, 69 × 69 sentímetrar að stærð og 42 sentímetrar á hæð. Það er nú fáanlegt í Epal ásamt Höfðingjanum.






