Hönnuður í fókus: Snýst ekki bara um skart heldur tengsl og sögur fólks

Guðbjörg Ingvarsdóttir er hönnuður í fókus í marsmánuði. Hún er einn fremsti gullsmiður landsins og gríðarlega skapandi. Guðbjörg og maðurinn hennar Karl Jóhann Jóhannsson stofnuðu Aurum árið 1999 sem hefur vaxið og dafnað til dagsins í dag. Hún segir að þegar þau fóru að sjá kynslóðir versla hjá þeim var það ljóst að uppskeran hafi borið raunverulegan árangur. „Það er þessi tenging, traust og samfella sem gerir okkur stolt,“ segir Guðbjörg.
Aurum er fjölskyldufyrirtæki sem er einn af þeirra helstu styrkleikum.
„Samvinnan hefur alltaf verið grunnurinn og síðustu ár hafa dætur okkar, Ásgerður og Karlotta, komið inn í reksturinn með aukinn kraft, ferska hugsun og fjölbreyttari sýn. Að vinna svona náið saman sem hjón krefst bæði virðingar og skilnings. Við höfum skýra verkaskiptingu: ég einbeiti mér fyrst og fremst að hönnuninni og sköpuninni, á meðan Karl hefur yfirsýn yfir rekstrarhliðina. Þannig nýtum við styrkleika hvors annars best.“
Þau kynna nýja skartgripalínu á HönnunarMars.
Ræturnar liggja til Vestfjarða
Guðbjörg er fædd og uppalin á Ísafirði og segir að Vestfirðir eigi alltaf sterka taug hjá sér. Þar mótaðist hún, bæði sem manneskja og hönnuður.
„Náttúran, kyrrðin og krafturinn í landslaginu kenndu mér að hlusta, finna og treysta innsæinu. Þessi tenging hefur fylgt mér alla tíð og speglast í verkunum mínum. Sem barn var ég nánast alltaf úti. Ég var mikil íþróttastelpa og átti erfitt með að sitja kyrr, nema þegar ég las,“ segir Guðbjörg.
Hún segir að veturnir einkenndust af skíðaiðkun af miklum móð og gleði, en á milli æfinga og leikja sökkti hún sér ofan í sögur. Guðbjörg ólst upp í sama húsi og amma og afi og í bókaskápnum þeirra beið ævintýraheimur íslenskra þjóðsagna. Þar kviknaði ást hennar á frásögnum.
„Sögur hafa síðan fylgt mér í gegnum lífið og eru í dag órjúfanlegur hluti af hönnunarferlinu mínu. Áður en skartið mótast í höndunum á mér verður til saga, tilfinning, stemning eða heimur sem ég vil kalla fram. Skartgripirnir bera því með sér brot af frásögn.“
Eitthvað sem small í kennslustundinni
Guðbjörg kynntist skapandi greinum fyrst af alvöru þegar hún fór í skiptinám til Bandaríkjanna. Þar ákvað hún að stíga út fyrir þægindarammann og skráði sig í öll listfög sem hún komst í. Í einni af þeirri kennslustofum fann hún eitthvað sem hún tengdi fast við og hún varð ástfangin af skartgripagerð. „Fyrstu handtökin lærði ég hjá norskri konu sem sá í mér möguleika sem ég sjálf hafði ekki enn séð og hvatti mig áfram. Sú hvatning breyttu miklu,“ segir hún. Eftir árið vissi Guðbjörg að hún hefði fundið sína leið, sína hillu.

Hún lagði stund á gullsmíði á Íslandi og í Danmörku og síðar framhaldsnám í skartgripahönnun í Kaupmannahöfn. „Þar fékk ég sterkan faglegan grunn og dýpri skilning á handverkinu, efninu og formunum. Á þessum tíma rak ég vinnustofu með öðrum skartgripahönnuðum í þrjú ár. Reynslan kenndi mér ekki aðeins um sköpun heldur líka um rekstur og samstarf. Ég hlaut einnig styrk frá danska ríkislistasjóðnum sem gerði mér kleift að einbeita mér alfarið að hönnuninni. Sá tími var dýmætur og mótandi.“
Sjálfbærni alltaf verið grunnurinn í hönnuninni
Þegar Guðbjörg flutti svo heim eftir námið og ævintýrin var hún tilbúin með fullmótaðar hugmyndir að sínum fyrstu skartgripum og sterka sýn á það sem hana langaði að skapa. Aðeins tveimur mánuðum eftir heimkomu stofnuðu þau hjónin Aurum.
„Mig langaði að byggja upp íslenskt skartgripamerki sem sameinaði vandað handverk, tímalausa hönnun og sterka frásögn. Ég fann að ég var að koma heim með ferska nálgun á greinina, en á sama tíma var þetta stórt og hugrakkt skref. Þá var lítið líf í miðbæ Reykjavíkur og sala skartgripa að mestu bundin við jólin. Það var því bæði bjartsýni og ákveðin þrjóska sem knúði mig áfram,“ segir Guðbjörg.
Sjálfbærni hefur frá upphafi verið órjúfanlegur hluti af vinnubrögðum Guðbjargar. Hún vinni mikið með endurunnið gull og silfur og leggur áherslu á að nýta hráefnin af virðingu og ábyrgð.
„Fyrir mér snýst þetta um heiðarleika gagnvart efninu, handverkinu og umhverfinu,“ segir Guðbjörg. „Þegar fyrirtækið tók að vaxa og við fluttum verslunina í Bankastræti, kom Karl, maðurinn minn, inn í reksturinn með sína dýrmætu reynslu úr atvinnulífinu. Síðan þá höfum við byggt fyrirtækið upp saman, skref fyrir skref, með skýra sýn og löngun til að fara okkar eigin leiðir bæði í hönnun og rekstri.“

Í dag selja þau hjónin skartgripi alla daga ársins, bæði í verslun sinni í Bankastræti og einnig á netinu. Kjarninn er þó alltaf hinn sami og í upphafi, sagan, handverkið og tengingin. „Kannski má rekja þetta allt aftur til Vestfjarða, í kyrrðina og kraftinn sem mótaði mig. Þar finn ég enn jafnvægið mitt og þar kvikna oft nýjar hugmyndir.“
Þurftu mikla ástríðu og vinnusemi fyrst um sinn
Reksturinn hjá Aurum fór hægt af stað í byrjun og það tók sinn tíma að kynna nýtt íslenskt skartgripamerki með ólíka nálgun og sýn inn á markaðinn. Á þessum tíma, um aldamótin og uppúr, var mesta lífið í miðbænum aðallega á sumrin. Veturnir voru rólegir fyrir utan jólahátíðina og netsala hafði ekki enn byrjað.
„Það þurfti mikla ástríðu og vinnusemi til að láta þetta ganga upp fyrstu árin, en hægt og rólega stækkuðum við á okkar eigin hraða. Ég myndi segja að árið 2008 hafi verið stórt happaár fyrir okkur. Þá fóru Íslendingar að velja íslenska hönnun í mun meiri mæli, sem gaf okkur bjartsýni til að halda áfram að þróa okkar konsept,“ segir Guðbjörg. „Á þessum tíma vorum við einnig byrjuð að hugsa út fyrir Ísland og farin að selja erlendis. Vöxturinn hefur verið markviss og stöðugur síðan.“
Guðbjörg segir að frá upphafi hafi verið lögð áhersla á að byggja sterkan grunn, bæði í hönnun og rekstri, og vera samkvæm sér í öllum ákvörðunum. Hjónin hafi í gegnum árin sótt sér faglega ráðgjörf erlendis sem hafi styrkt þau í sinni þróun og stefnumótun.

„Fyrstu árin fóru í að móta línurnar okkar og skapa sérstöðu. Með tímanum fór fólk að þekkja stílinn og koma aftur og aftur. Mikill árangur byggist á trausti, endurkomu viðskiptavina og því að sækja nýja viðskiptavini. Við höfum ávallt haldið áfram að þróa ný verk af ástríðu og gleði. Síðustu ár höfum við aukið áherslu á giftingahringi og demantsskartgripi, sem hefur verið bæði afar gefandi og ótrúlega skemmtilegt. Að fá að taka þátt í stærstu augnablikum í lífi fólks er mikil ábyrgð og forréttindi,“ segir Guðbjörg.
Leggja mikla áherslu á persónulega upplifun og vandaða
Vefsíða Aurum hefur orðið sífellt mikilvægari hluti af rekstrinum undanfarin ár. Síðustu ár hefur verið lögð mikil vinna í að gera upplifunina á vefversluninni persónulega og vandaða.
„Með tilkomu Covid sáum við skýra breytingu á kauphegðun, sérstaklega Íslendinga. Fólk fór í auknum mæli að skoða og versla á netinu og sú þróun hefur haldið áfram,“ segir Guðbjörg.
„Viðskiptavinir kunna að meta það að geta skoðað línurnar í ró og næði, borið saman valkosti og notið góðrar þjónustu, jafnvel þótt þeir séu ekki á staðnum. Við höfum því lagt mikla áherslu á að viðhalda persónulegri þjónustu í stafræna rýminu líka, því fyrir okkur skiptir sambandið við viðskiptavininn alltaf mestu máli.“
Sækir innblástur í íslenska náttúru og mannleg tengsl
Guðbjörg sækir innblástur víða en segir að íslensk náttúra hafi haft djúpstæð áhrif, sérstaklega Vestifirðir. Þar sé ákveðin hrá fegurð, kyrrð og styrkur sem hefur fylgt henni alla tíð. Línurnar í landslaginu, birtan og andrýmið allt sitji í henni og birtist oft ómeðvitað í formunum sem hún vinni með.
„Ég sæki einnig mikinn innblástur í mannleg tengsl og lífsferil fólks. Skartgripir tengjast oft mikilvægum augnablikum ástar, heitum, tímamótum og minningum. Það er mér dýrmætt að fá að skapa hluti sem verður partur af slíkum stundum. Að vita að verk mín fylgi fólki í gegnum lífið og geymi minningar er ég þakklát fyrir,“ segir Guðbjörg einlæg.
Með árunum hafi hún tileinkað sér ákveðna ró í hönnunarferlinu.
„Ég leyfi hugmyndunum að þróast og gef þeim tíma. Ég hef aldrei fundið hjá mér þörf til að flýta mér að setja nýja hluti á markað því mér finnst mikilvægara að hlusta, lesa í tíðarandann og leyfa verkunum að þróast áður en þau fara út í heiminn. Að vinna með eðalmálma kennir manni líka að bera virðingu fyrir efninu. Gull og silfur eru lífseig og 100% endurnýtanleg. Það er alltaf hægt að laga, umbreyta og endurvekja,“ segir Guðbjörg.
Henni þykir falleg hugsun að skartgripir geti lifað lengi, jafnvel gengið á milli kynslóða og tekið á sig nýtt líf. Sérstaklega gleðji það þegar viðskiptavinur gengur inn í búðina með eldra Aurum skart sem hefur kannski verið í daglegri notkun í mörg ár og vill láta yfirfara það svo það fái ljómann sinn aftur.
„Á slíkum augnablikum finn ég hvað tímalaus hönnun og vandað handverk skipta máli. Skartgripir eru ekki tískusveifla heldur varanleg verðmæti.“
Hlutu Lifetime Achievement Award 2026
Aurum hefur sett sinn svip á erlendan markað. Þau hafa fengið mikið af pöntunum frá ýmsum heimshornum og hafa stækkað talsvert á erlendum mörkuðum, sérstaklega í Bandaríkjunum, Bretlandi og á Norðurlöndunum. Það er gott að sjá að tímalaus hönnun og vandað handverk tala alþjóðlegt tungumál.
Í um 15 ár hafa þau unnið með erlendum sérfræðingum sem hafa veitt faglega ráðgjöf og hjálpað til við að þróa vörumerkið á alþjóðlega sókn á markvissan hátt.
„Að fá utanaðkomandi sýn, samhliða okkar eigin reynslu og innsýn hefur verið ómetanlegt. Þetta styrkir okkur bæði í hönnun og rekstri og tryggir að vörur okkar ná til breiðari markhópa án þess að tapa sérstöðunni sem gerir Aurum að Aurum,“ segir Guðbjörg. „Það er sannarlega spennandi að vita að skartgripir sem eru mótaðir með innblæstri á Vestfjörðum og íslenskri náttúru ferðast um heiminn, taka þátt í stórum augnablikum fólks í fjarlægum löndum og verða hluti af sögum þeirra rétt eins og hér heima.“
Á dögunum fékk Aurum mikinn heiður þegar fyrirtækið hlaut Lifetime Achievement Award 2026 á UK Wedding and Honeymoon Awards í London. „Þetta var afar gleðilegt augnablik og staðfesting á því að markviss vinna við að byggja upp tengsl við erlendan markað hefur skilað árangri. Verðlaunin eru ekki aðeins viðurkenning fyrir handverk og hönnun, heldur einnig fyrir stöðuga þróun og trúverðugleika Aurum á alþjóðavísu.“

Tengingin gefur dýpri merkingu
Nýjustu verkefni Aurum halda áfram að tengja hönnunina við innblásturinn og rætur þeirra. Á HönnunarMars munu þau kynna VIVA sem sameinar skart, náttúru og mannslíkamann.
„Hugmyndin er að skartið flæði með líkamanum, endurskapandi form úr hráleika Íslands, þar sem efni, form og hreyfing mætast í fallegu samspili. Við sýnum nokkur stærri og áberandi verk, meðal annars hálsmen og armbönd sem fá að njóta sín og hreyfast með líkamanum. Þau undirstrika fegurð hreyfingarinnar og tenginguna við upprunann, en halda jafnfram í tímalausa nálgun sem einkennir Aurum,“ segir Guðbjörg.
„Ég er ótrúlega þakklát fyrir allt traustið sem við höfum fengið í gegnum árin. Það að fá að vera hluti af mikilvægum augnablikum í lífi fólks, giftingum, tímamótum og minningum er dýrmætt og ég tek því ekki sem sjálfsögðum hlut. Fyrir mér snýst þetta ekki bara um skart heldur um tengsl og sögur fólks. Það er þessi tenging sem gefur Aurum dýpri merkingu,“ segir Guðbjörg.
„Það er mér einnig mikilvægt að halda áfram að þróast sem hönnuður, vera forvitin, leita innblásturs og leyfa sköpuninni að leiða mig áfram. Hver ný lína, hvert nýtt verk er bæði ævintýri og framhald ad sögu sem hófst á Vestfjörðum, varð að Aurum og heldur áfram að vaxa með fólki og samfélagi hér heima og erlendis.“


