Hönnunarteymið 1+1+1 bætist í hópinn fyrir DesignTalks

Þá er komið að því að kynna næstu fyrirlestara á DesignTalks í ár. 1+1+1 er tilraunakennt samstarf hönnuða frá þremur norðurlöndum: Hugdetta frá Íslandi, Petra Lilja frá Svíþjóð og Aalto+Aalto frá Finnlandi. Hönnunartreymið hristir upp í hefðbundnu hönnunarferli og meðlimirnir koma sjálfum sér stöðugt á óvart.
Verkefnið endurhugsar hluti með því að hvert stúdíó hannar hlut sem samanstendur af þremur aðgreindum einingum, sem síðan er blandað saman í ófyrirsjáanlegar samsetningar. Engar málamiðlanir eru leyfðar þar sem stúdíóin hanna öll eftir sinni eigin hugmyndafræði. Á þennan hátt ögrar verkefnið hefðbundnu hönnunarferli og útkoman kemur sífellt á óvart, jafnvel hönnuðunum sjálfum. Verkefnið byrjaði með því að þau langaði að finna leið til að geta unnið saman þrátt fyrir landfræðilegar staðsetningar, en útkoman varð miklu meira en summan af hlutunum sjálfum.










„Þegar við bjuggum þessa aðferð til, höfðum við ekki hugmynd um hvers mætti vænta af niðurstöðunum. Óvæntu form og samsetningar voru ákaflega spennandi og við vissum að við höfðum skapað eitthvað sérstakt. Verkefnið, sem hófst óvænt sem einnota tilraun, óx og hefur nú varað í 10 ár. Fyrst og fremst snýst það um vináttu og samstarf,“ segir hönnunarteymið 1+1+1.
Það verður spennandi að hlýða á þetta flotta teymi sem stígur á stokk 6. maí í Hörpu á DesignTalks í ár.
Þetta er samtal sem þú vilt alls ekki missa af!


