Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Stórstjarnan Dorte Mandrup á DesignTalks

26. febrúar 2026

Einn þekktasti og áhrifamesti norræni arkitekt síðustu ára stígur á svið þegar Dorte Mandrup verður meðal fyrirlesara á DesignTalks 6. maí. Hún er þekkt fyrir verk sem sameina djúpa hugmyndafræði, sterka fagurfræðilega sýn og næmt samtal við náttúru og samhengi. Nýleg verk arkitektastofu hennar, Dorte Mandrup Arkitekter, eru meðal annars Norrøna Lodge í Noregi, Exile Museum í Berlín og Ilulissat Icefjord Centre, Grænlandi. Dorte var nýlega útnefnd heiðursfélagi í Bandalagi bandarískra arkitekta.

Tryggðu þér miða í forsölu hér

Tryggðu þér miða í forsölu hér

Dorte Mandrup-Poulsen er danskur arkitekt og einn áhrifamesti hönnuður Norðurlandanna. Hún er stofnandi og listrænn stjórnandi arkitektastofunnar Dorte Mandrup Arkitekter, sem telur um 60 starfsmenn og hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Stofan hefur hannað fjölda alþjóðlega viðurkenndra bygginga sem vakið hafa athygli fyrir djarfa hugmyndafræði og sterka fagurfræðilega sýn. Dorte var m.a. aðalsýningarstjóri á La Biennale de Venezia árið 2018, formaður Mies van der Rohe-verðlaunanna árið 2019 og er varaformaður Louisiana-listasafnsins, heiðursprófessor við Konunglega dönsku byggingarlistarakademíuna.

Næm tilfinning fyrir landslagi

Verk Dorte Mandrup einkennast af hugmyndafræðilegum styrk, nýsköpun í formi og efnisnotkun og djúpri greiningu á samhengi staðarins. Hún vinnur á mörkum listar og arkitektúrs þar sem náttúra, menning og mannleg upplifun mætast í kraftmikilli heild. Í verkefnum hennar má sjá næma tilfinningu fyrir landslagi og sögu, þar sem byggingar rísa ekki aðeins sem mannvirki heldur sem samtal við umhverfi sitt.

Með verkum á borð við hið rómaða Wadden Sea Centre og hið einstaka The Whale hefur hún sýnt hvernig arkitektúr getur verið bæði ljóðrænn, róttækur og jarðbundinn en um leið framtíðarsýn. Verk hennar hafa verið tilnefnd til og hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og eru reglulega birt í virtustu miðlum heims á sviði hönnunar og byggingarlistar.

Á DesignTalks mun Dorte Mandrup deila innsýn í hugmyndafræði sína, sköpunarferlið og hvernig arkitektúr getur haft víðtæk áhrif í samfélagi og byggðu umhverfi. Ekki aðeins í rýminu sjálfu heldur í hugsun okkar um heiminn. Fyrir öll sem hafa áhuga á hönnun, arkitektúr og krafti góðra hugmynda er fyrirlestur hennar einstakt tækifæri til innblásturs.

Samtalið sem þú vilt vera hluti af

„Dorte Mandrup er meðal áhrifamestu arkitekta samtímans sem vinnur á mörkum hins sýnilega og hins ómögulega, þar sem hún fangar falda takta landslagsins með dularfullum og fáguðum krafti. Verk hennar búa yfir agaðri spennu og tærri ljóðrænu sem fær mann til að efast um hvar náttúran endar og mannvirkið byrjar. Verk hennar einkennast samtímis af aga og spennu sem gerir hvert verk að algjöru lykilverki í alþjóðlegri samtímasögu. Arkitektúr Dorte Mandrup er skörp en á sama tíma undirtónuð ögrun sem lofar nýrri sýn á tilveruna – sýn sem á brýnt erindi við hönnuði samtímans,” segir Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og fyrrverandi deildarforseti arkitektúrs við Listaháskóla Íslands.

„DesignTalks er ómissandi viðburður sem dregur upp nýja og brýna sýn á hönnun samtímans. Það væri synd að missa af tækifærinu til að upplifa framúrskarandi hönnun og þær nýju hugmyndir sem munu móta samtímann. Þetta er samtalið sem þú vilt vera hluti af,” segir Hildigunnur.

Tryggðu þér miða á DesignTalks og upplifðu þegar ein áhrifamesta rödd samtíma arkitektúrsins stígur á svið.

Tengt efni

  • Hjalti Karlsson og Stefan Sagmeister á DesignTalks 2026

  • Þema HönnunarMars og DesignTalks 2026

  • HönnunarMars mest sótta hátíðin

Dagsetning
26. febrúar 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • DesignTalks
  • HönnunarMars
  • DesignMarch

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200