Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Horfðu á DesignTalks 2022

30. júní 2022
Mynd/Aldís Pálsdóttir

Alþjóðlega ráðstefnan DesignTalks fór fram fyrir fullu húsi á HönnunarMars 4. maí. Í fyrsta sinn var ráðstefnunni streymt í gegnum fjölmiðlasamstarfsaðila hátíðarinnar Dezeen og hefur streymið náð til hátt í 200 þúsund manns. 

Þessi lykilviðburður HönnunarMars var undir listrænni stjórn Hlínar Helgu Guðlaugsdóttur. Kynnir var Marcus Fairs, ritstjóri og stofnandi hönnunarmiðilsins Dezeen. Ráðstefnan var heill dagur af innblæstri frá skapandi hugsuðum og framtíðarrýnum sem varpaði ljósi á hvernig hönnun og arkitektúr geta tekið þátt í uppbyggingu og framþróun og verið hreyfiafl breytinga.

Dagskrá dagsins var skipt upp í þrjá hluta og hægt er að horfa hér:

Fyrsti hluti

–

Ferðalag um hringrásarhugsun, seiglu og endurtengingu við hefðbundið handverk og frumbyggja visku.

Fram komu Michael Pawlyn, frumkvöðull á sviði biomimicry og regenerative arkitektúrs, Barbara, hönnunarskáldsaga sem gerist í náinni framtíð eftir Garðar Eyjólfsson og Janosch Bela Kratz, sköpunarstjórinn og mynsturhönnuðurinn Gabriela Sánchez y Sánchez de la Barquera, hönnuðurnir og listamennirnir Aamu Song og Johan Olin, stofnendur  COMPANY, sem reka Salakauppa (Leynibúðina) í Helsinki, Ragna Sara Jónsdóttir, listrænn stjórnandi hönnunarmerkisins FÓLK, brot úr heimildarmyndinni Interment eftir Önnu Maríu Bogadóttur, Anders Lendager, frumkvöðull í sjálfbærni og meðstofnandi arkitektastofunnar Lendager group og Valdís Steinarsdóttir, margverðlaunaður hönnuður. Í þessum hluta leiddi Marcus Fairs samtal við Anders Lendager, Rögnu Söru Jónsdóttur og Kent Martinussen, framkvæmdarstjóra Miðstöðvar arkitektúrs í Danmörku.

Annar hluti

–

Endurhugsun núverandi kerfa, umhverfisendurreisn, hönnun gagna og upplýsinga og hið stafræna rými. 

Fram komu Tor Inge Hjemdal, framkvæmdastjóri DOGA, Stefán Laxness, arkitekt, fræði- og listamaður, áður starfandi hjá Forensic Architecture, Giorgia Lupi, upplýsingahönnuður og meðeigandi Pentagram, talsmaður gagnalæsis, Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar leturhönnuður og stofnendur Universal Thirst, letursmiðju sem sérhæfir sig í hönnun indverska og latneskra leturgerða og hefur unnið með fyrirtækjum á borð við listahátíðina Frieze Art, Monotype og Google. Marcus Fairs leiddi samtal við Giorgia Lupi, Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar.

Þriðji hluti

–

Kafað dýpra í hinn stafræna heim, útvíkkaðan raunveruleika og spáhönnun sem dregur upp framtíðarmyndir til að spegla og rýna samtímann.

Fram komu stafræni fatahönnuðurinn Susanne Vos hjá The Fabricant, stafrænu tískuhúsi sem starfar á mótum tísku og tækni og býr til stafræna tísku og tískuupplifanir sem verður einnig í samtali við Mosha Lundström, tískuritstjór, stílisti og blaðamaður hjá VOGUE. Arnhildur Pálmadóttir hjá s. ap. arkitekum, sem vinna á mörkum sköpunar, tækni og vísinda og síðast en ekki síst Liam Young, margverðlaunaður sci-fi arkitekt, leikstjóri og framleiðandi. Í lokin er samtal sem Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi hjá CCP Games, stýrir við Nils Wiberg, gagnvirkur hönnuður hjá Gagarín og Arnhildi Pálmadóttur hjá s. ap. Arkitektum.

Taktu frá dagana 3.-7. maí fyrir HönnunarMars 2023! 

HönnunarMars.is

Ýttu hér

Tengt efni

  • Loksins aftur DesignTalks!

  • HönnunarMars settur í Hörpu með lúðrablæstri

  • „Hátíð ímyndunaraflsins - og stund íhugunar”

Dagsetning
30. júní 2022
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • DesignTalks
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200