Húsnæðiskostur & híbýlaauður-Samtal
Verkefnið Húsnæðiskostur & híbýlaauður hlaut styrk úr Minningarsjóði Guðjóns Samúelssonar fimmtudaginn 30. september sl. Í tilefni þess munu styrkþegar eiga samtal um verkefnið þriðjudaginn 8. október kl. 20.30 í Grósku.
Fimmtudaginn 30. október úthlutaði stjórn Minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar styrk úr sjóðnum. Alls bárust tólf umsóknir um styrkinn en eftir yfirlegu stjórnar sjóðsins var ákveðið veita verkefninu Húsnæðiskostur & hýbílaauður styrkinn.
Á bak við verkefnið Húsnæðiskostur og hýbílaauður standa Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur; Hildur Gunnarsdóttir, arkitekt; Ásgeir Brynjar Torfason, viðskiptafræðingur; Hrefna Björk Þorsteinsdóttir, arkitekt; Hólmfríður Jónsdóttir, arkitekt og Snæfríð Þorsteins, hönnuður.
Veittur var styrkur til útgáfu bókar og miðlun rannsókna á sviði húsnæðismála frá sjónarhóli arkitektúrs og hönnunar. Í bókinni er þróun húsnæðiskosta á Íslandi spegluð í alþjóðlegu samhengi hugmynda-, félags- og fagurfræði sem og hagrænna þátta og verður lögð áhersla á gæði húsnæðis og áhrif þeirra á heilsu og upplifunar fólks. Markmiðið með útgáfunni er að er að brýna rödd og þekkingu fag-og fræðafólks á sviði hönnunar og arkitektúrs til áhrifa á sviði húsnæðismála.
Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í vetur mun Arkitektafélag Íslands standa fyrir fyrirlestrum um arkitektúr og hið byggða umhverfi. Fyrirlestrarnir verða haldnir í Fenjamýri, sal á 1. hæð í Grósku.