Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hvernig hönnum við lifandi samfélag?

6. júní 2025

Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs hélt erindi og tók þátt í samtali á Munchen Creative Business Week í maí þar sem voru gerðar tilraunir til að svara spurningunni: Hvernig við byggjum lífleg og lifandi samfélög?

Halla tók þátt í ráðstefnu þar sem fjölmargir þátttakendur héldu erindi um hönnun sem tæki til að skapa samfélög, auka samkennd og forvitni og áhuga á nýjum lausnum m.a. Tim Brown frá IDEO og ítalski hönnuðurinn og fræðimaðurinn Enzio Manzini og Ana Relvão frá Relvãokellermann.

Í erindi sínu fjallaði Halla um hvernig krefjandi aðstæður, hvort sem er efnahagshrun eða eldgos, geta skapað tækifæri til sköpunar. „Til dæmis hafa dramatískar aðstæður á Íslandi, eldvirkni, jarðhræringar og jarðhiti, haft veruleg áhrif á arkitektúr og þróun innviða og hins byggða umhverfis í samfélaginu,“ segir Halla og bendir máli sínu til stuðnings á sundlaugamenningu landsins sem er tilkomin vegna náttúrulegs jarðhita. 

„Sundlaugar okkar Íslendinga, sem segja má að séu okkar almenningstorg og garðar, eru gott dæmi um það hvernig við nýtum jarðhitann til að búa til þessa sterku baðmenningu. Í landinu eru um 200 sundlaugar, manngerðar og náttúrulegar,“ segir Halla.  

Annað dæmi um að hvernig krísa hefur búið til frjóan farveg til sköpunar er tilurð HönnunarMars, hinnar árlegu hátíðar hönnunar og arkitektúrs í Reykjavík. „Eftir fjármálahrun á Íslandi árið 2008 sköpuðust aðstæður fyrir nýja hugsun, nálgun og þörf til að virkja sköpunarkraftinn verður mjög sterk. Í því andrúmi varð fyrsti HönnunarMarsinn til.“

Á Feneyjatvíæringnum sem nú stendur yfir er Ísland með skála í fyrsta skipti en Halla tvinnaði verkefni Arnhildar Pálmadóttur arkitekts og fulltrúa Íslands á Tvíæringnum inn í erindi sitt. „Lavaforming er hugmynd sem byggir á því að við nýtum rennandi hraun í virku eldgosi sem sjálfbært byggingarefni í framtíðinni.“

Tengt efni

  • Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands á heimssýningunni

  • Metnaðar­full mark­mið og stórir sigrar

  • Ráðherrar Íslands og Finnlands funda

Dagsetning
6. júní 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200