Ráðherrar Íslands og Finnlands funda

Mari-Leena Talvitie finnski vísinda- og menningarmálaráðherrann átti nýlega fund með Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem þau voru bæði stödd á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo sátu einnig fundinn.
Þar var m.a. rætt um Norrænan samstarfsvettvang á sviði hönnunar og arkitektúrs.
Markmið samstarfsvettvangsins er að efla samstarf milli aðila, deila þekkingu og um leið dýpka skilning norræns stjórnmálafólks á hlutverki hönnunar og arkitektúrs í grænni umbyltingu, og hvernig þessar greinar geta haft jákvæð áhrif á atvinnulífið og samfélögin í heild.
• Vettvangurinn getur verið stefnumótandi faglegur samstarfsaðili ríkisstjórna Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndinni í málefnum hönnunar og byggingarlistar.
• Vettvangurinn getur verið samstarfsaðilar til að taka að sér verkefni, reka og innleiða dagskrár á okkar sviðum í norður og á alþjóðavettvangi.
Nú þegar er verið að vinna að sameiginlegu verkefni um sem tengist Expóskálanum í Osaka.