Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Síðasta sýningarhelgi BERGMÁL LANDSINS

29. maí 2025

Síðasti dagur sýningarinnar BERGMÁL LANDSINS verður næsta sunnudag, 1. júni. Mikið verður um að vera um helgina en á laugardaginn fer fram upplifunarsmiðjan Leirvitund og á sunnudaginn verður POP-UP keramik markaður fyrir utan sýningarsalinn á Eiðistorginu.

Á sýningunni sýna fimmtán félagar verk sín. Sýnendur eru: Aldís Yngvadóttir, Anna S. Hróðmarsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Elísabet Haraldsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Halldóra Hafsteinsdóttir, Hafdís Brands, Helga Arnalds, Hólmfríður Vídalín, Hrönn Waltersdóttir, Katrín V. Karlsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Ylona Supèr.

Verkin sem birtast eru mótuð úr efni jarðar, mótuð af höndum sem hlusta á leirinn og landslagið, og tala þannig tungumál náttúrunnar.

Sýningin er óður til náttúrunnar í öllum sínum fjölbreytileika: frá hrjúfum hraunflötum til mjúka mosans, frá gárum vatnsins að nöprum kossi vindsins. Formin eru lífræn, óregluleg og lifandi — þau minna okkur á það sem vex, hverfur, breytist og kemur aftur. Hér mætast formin, litirnir og áhrifin sem náttúran kallar fram.

Með þessum verkum er dregin upp mynd af handverki sem virðir efniviðinn okkar og talar inní framtíð sem virðist oft stefna hraðbyri að glötun. Í heimi þar sem oft fennir yfir tengslin við náttúruna opnast hér gluggi að dýpri skilningi – þar sem listin minnir okkur á tengsl okkar við heildina, hluti af moldinni sem við stígum á og mótum.

Sýningarstjóri er Búi Bjarmar Aðalsteinsson hönnuður.

Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga frá 12:00-17:00 og lýkur sunnudaginn 1. júní.

Viðburðir um helgina:

Laugardagur: Leirvitund - upplifunarsmiðja kl. 17:00-18:00.

Sunnudagur: POP-UP keramik markaðurinn kl: 13.00-16.00.

Meira hér

Tengt efni

  • Íslenska þjóðardeginum fagnað á heimsýningunni í Osaka

  • Fagurferðileg skynjun og líkamleg hlustun - erindi

  • Góðar viðtökur og framhaldslíf Lavaforming

Dagsetning
29. maí 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Leirlist
  • Leirlistafélagið
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200