Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

JARÐSETNING – íslensk heimildamynd um endalok og nýtt upphaf í manngerðu umhverfi frumsýnd á RIFF

30. september 2021

Laugardaginn 2. október kl. 17 verður heimildamyndin Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt frumsýnd í Bíó Paradís. Með aðalhlutverk í myndinni fer stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu, sem rís á sjöunda áratugnum í anda alþjóðlegra framtíðarhugmynda. Endalok framtíðarbyggingar á endastöð hugmynda um einnota byggingar.

Steinsteypt hús á fimm hæðum með kjallara. Byggt eftir teikningum Halldórs H. Jónssonar arkitekts. Hálfri öld síðar er byggingin dæmd til að víkja, mæta afli vélarinnar og kröftum náttúrunnar.

Í heimildamyndinni Jarðsetning er niðurrif byggingarinnar og örlög byggingarefnanna rakin. Áhorfendur verða við vitni að upplausn forma og efna með daglegt líf borgarinnar í bakgrunni. Fylgst er með hvernig hrein og einföld form byggingarinnar afmyndast, hvernig burður í sverum súlum og þykkum gólfplötum gefur eftir. Á vinnusvæðinu er byggingarefni flokkað í litaðar stálkistur og flutt burt á urðunarstaði. Þetta er jarðsetning. Endalok framtíðarbyggingar á endastöð hugmynda um einnota byggingar. Framtíðin heilsar um leið og hún kveður. 

Upptökur af niðurrifinu fóru fram á árunum 2017-2018, en árið 2007 voru opinberaðar hugmyndir um að í framtíðinni skyldi byggingin verða hótel. Ári síðar samþykkti borgarstjórn breytingu á skipulagi með heimild til niðurrifs byggingarinnar og nýrrar uppbyggingar. Byggingin þjónaði sem banki fram til ársins 2015 og vék í kjölfarið fyrir nýrri hótelbyggingu. Hún hvílir nú að mestu á urðunarstöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Anna María Bogadóttir, arkitekt

Jarðsetning er fyrsta mynd Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts. Hún er hluti af stærra verkefni hennar á sviði framsækinnar byggingarvarðveislu sem varpar ljósi á endalok og nýtt upphaf í manngerðu umhverfi. Verkefni sem finnur sér farveg gegnum heimildamynd, innsetningar og bók sem er væntanleg á næsta ári. Myndin er framleidd af Úrbanistan með stuðningi Hönnunarsjóðs Íslands og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

–

Sýningar á myndinni á RIFF:

  • Lau 2/10 kl. 17 frumsýning + Q&A, Bíó Paradís
  • Sun 3/10 kl. 13.30 Norræna húsið
  • Fös 8/10 kl. 14 Bíó Paradís

Um aðstandendur myndarinnar

Jarðsetning
heimildamynd eftir Önnu Maríu Bogadóttur
leikstjóri: Anna María Bogadóttir
kvikmyndataka: Logi Hilmarsson
klipping: Sighvatur Ómar Kristinsson
hljóð og tónlist: Bergur Þórisson
litgreining: Trickshot
framleiðandi: Anna María Bogadóttir
framleiðslufyrirtæki: Úrbanistan

lengd: 50 mín
alþjóðlegur titill: Interment

Tengt efni

  • Nemendur í grafískri hönnun opna sýninguna Loksins loksins

  • Umsóknafrestur til að sækja um styrki úr borgarsjóði Reykjavíkurborgar rennur út 1. október

  • Gagarín hannar sýningu fyrir stærsta sædýrasafn Norðurlandanna

Dagsetning
30. september 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200