Áskoranir og nýjungar í loftræstingu-Málstofa þriðjudaginn 19. september
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/7d702cb7-1e9e-49ac-b6e5-f8baae9c147a_loftraesting.png?auto=compress,format&rect=0,0,1170,663&w=1620&h=918)
Góð loftræsing mannvirkja er órjúfanlegur hluti heilnæmis, orkunotkunar og endingar mannvirkja. HMS býður á málstofu þriðjudaginn 19. september n.k. kl. 14:00 í Borgartúni 21 þar sem loftræsting verður í aðalhlutverki. Þar munu loftræsisérfræðingar úr Norðurlandasamstarfi um loftræsingu og tveir íslenskir sérfræðingar flytja stutta fyrirlestra um áskoranir og nýjungar á þessu sviði. Að fyrirlestrunum loknum verður gefið tækifæri fyrir spurningar og umræður úr sal.
Málstofa þessi er liður í því að auka fræðslu bæði til fagaðila og neytenda um loftræsingu.
Hvetjum alla áhugasama til að mæta og taka þátt í umræðunum.
Fyrirlesarar verða:
- Jonas Edahl frá Boverket í Svíþjóð
- Siru Lönnqvist frá finnska umhverfisráðuneytinu
- Olli Seppänen frá finnska umhverfisráðuneytinu
- Pekka Kalliomäki frá finnska umhverfisráðuneytinu
- Johannes Utoft Christensen frá Social- og Boligstyrelsen í Danmörku
- Eiríkur Á Mangússon frá Ventum og
- Ágúst Pálsson frá Verkís
Hvenær: Þriðjudaginn 19. september kl. 14.00
Hvar: HMS, Borgargtún 21