Myndskreytt tengsl Íslands og Finnlands í 75 ár í Þjóðminjasafni Íslands
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/b70ea187-ffe9-4ad5-ae0c-f28d18635278_Finnisland_National_Museum_6120x2240mm%2B5mm_1_4_fogra39.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,4344,1593&w=1620&h=594)
Í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá því að Ísland og Finnland tóku upp formlegt stjórnmála-samband hefur verið sett upp sýning í Þjóðminjasafni Íslands þar sem hönnuðirnir og myndskreytarnir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Lotta Nykänen beina sjónum að samskiptum ríkjanna með myndrænum hætti.
Tvíhliða samskipti þjóðanna eru góð og byggja á gagnkvæmum skilningi. Löndin eru sammála um hvað skipti helstu máli á alþjóðavettvangi. Samskipti þjóðanna hafa á liðnum árum dafnað á sviði menningar, lista, viðskipta og beint meðal fólks. Einnig hafa lífsskilyrði þjóðanna batnað til muna með árunum. Ísland og Finnland eru bæði málsvarar alþjóðlegs og norræns samstarfs og sýna það í verki saman eða í sitthvoru lagi.
Sýningunni er ætlað að beina sjónum að samskiptum ríkjanna í gegnum tíðina á léttu nótunum. Fjallað er um stjórnmálasamband, þekkt þjóðleg einkenni og minnisverða atburði. Sýningin varpar þó fyrst og fremst ljósi á þá samheldni sem til þarf þannig að takast megi á við verkefni framtíðarinnar.
Lotta Nykänen er finnskur myndskreytir og grafískur hönnuður sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og frá Háskólanum í Lappland 2019. Hún vinnur á auglýsingastofu í Rovaniemi, þar sem hún er búsett ásamt íslenskum eiginmanni og dóttur.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BFA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, nam myndlist við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi, teikningu í Parson’s New School for Design í New York og útskrifaðist með MA gráðu í Ritlist frá Háskóla Íslands. Lóa hefur myndlýst yfir 30 barnabækur og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og ungmennabókaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir fyrstu barnabókina sem hún skrifaði. Frá árinu 2005 hefur hún flutt tónlist og ferðast með hljómsveitinni FM Belfast.
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/7a7c0893-b4b7-45f5-b065-0312668f3082_1980_Vigdis.png?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/187fa67d-3243-4bd3-9214-811d20e8a03c_Sauna_text.png?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/a244994d-a646-4157-8021-87bce2463965_1973_houseboat.png?auto=compress,format)