Opið fyrir umsóknir um sýningarhald í Ásmundarsal 2021
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/b53bc2a8-f818-4171-b576-879488887dea_A%CC%81smundarsalur+salur_to%CC%81mur2.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,1332,888&w=1620&h=1080)
Ásmundarsalur óskar eftir tillögum að sýningum, viðburðum eða uppákomum sem fanga fjölbreytileika listarinnar. Einnig er óskað eftir vinnustofu listamanns í Gunnfríðargryfju í einn til tvo mánuði í senn.
Umsóknir skulu berast á netfangið asmundarsalur@asmundarsalur.is fyrir 10. september næstkomandi. Vinsamlegast skilið inn efni í pdf skjali, hámark 5 síður. Í umsókn skal taka eftirfarandi fram:
• Fullt nafn listamanns
• Lýsing á fyrirhugaðri sýningu / viðburði / verkefni
• Myndir af völdum verkum, textum o.þ.h.
• Vefsíða listamanns ef við á
• Fylgiskjöl: Ferilskrá
Ásmundarsalur er sjálfstætt starfandi sýningarsalur sem leggur til aðstöðu og vinnustofu fyrir listamenn í miðbæ Reykjavíkur.
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/30c8fc88-743f-4011-b62d-723a303231cf_A%CC%81smundarsalur+4th+of+June-5.jpg?auto=compress,format)