Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Samtal um Hraunmyndanir

9. apríl 2026

Sunnudaginn 12. apríl kl. 14:00-15:00 efnir Listasafn Reykjavíkur í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs til samtals um verkefnið Hraunmyndanir, framlag Íslands til 19. alþjóðlega Feneyjartvíæringsins í arkitektúr 2025 og birtingarmyndir hrauns í bæði myndlist og arkitektúr á Íslandi. Sýningin Hraunmyndanir er til sýnis í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi til 26. apríl 2026.

Þátttakendur í samtalinu eru fólkið á bakvið verkefnið sjálft og sýninguna í Listasafni Reykjavíkur: s.ap arkitektar; Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, Andri Snær Magnason, rithöfundur og Halldór Ásgeirsson, myndlistarmaður. Markús Þór Andrésson, safnstjóri, leiðir samtalið.

Hraunmyndanir er framtíðarsýn í arkitektúr þar sem glóandi hraun er notað sem byggingarefni fyrir mannvirki og heilar borgir. Sýningin segir sögu framtíðarsamfélags sem hefur lært að temja hraunflæði, nýta sér það og þannig breytt staðbundinni ógn í tækifæri til sköpunar.

s. ap arkitektar er ung en reynslumikil arkitektastofa sem starfar á mörkum hönnunar, tækni og vísinda. Verkefni stofunnar eru bæði hefðbundin arkitekta- og hönnunar verkefni en einnig tilraunakennd rannsóknarverkefni þar sem farið er framhjá núverandi kerfum og horft til tækni framtíðarinnar með það að markmiði að þróa nýjar aðferðir tengdar mannvirkjagerð og sporna við áhrifum hennar á loftslagsbreytingar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.

Viðburður á facebook

Viðburður á facebook

Tengt efni

  • Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík

  • „Bestu verkin eru oft þau sem enginn tekur sérstaklega eftir“

  • Vilt þú hafa áhrif á þróun samræmdra verklýsinga á Íslandi?

Dagsetning
9. apríl 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Feneyjatvíæringur
  • Grein

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200