Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Spennandi ný námslína í hönnun hefst í haust í Háskólanum í Reykjavík

27. febrúar 2026

Tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík mun fara af stað með nýja og spennandi námsleið í Hönnunar- og vörutæknifræði BSc í haust en þetta nýja nám er kærkomin viðbót við það fjölbreytta hönnunarnám sem í boði er hér á landi. Námið sameinar tækni, vöruhönnun og vöruþróun á traustum grunni raungreina og er ætlað þeim sem vilja þróa hugmyndir í raunverulegar vörur, frá fyrstu skissu til framleiðslu. Einnig er lögð áhersla á stjórnun þróunarteyma og verkefna. Námið opnar fjölbreytt tækifæri í sprotaumhverfi, iðnaði, framleiðslu eða í sjálfstæðum rekstri. 

Fagstjóri nýju námsleiðarinnar í hönnunar- og vörutæknifræði er Sigga Heimis, iðnhönnuður, en Sigga hefur starfað við hönnun og nýsköpun í nokkra áratugi og segist alltaf finna fyrir jafn mikilli ástríðu fyrir framþróun hönnunar. 

„Ég hef starfað á mörgum mismunandi sviðum og fyrir alls konar fyrirtæki, hérlendis sem erlendis. Þó hefur IKEA verið mitt heimasvæði en ég starfaði þar í 22 ár. Fyrstu 10 sem hönnuður en svo tók við hönnunarstjórnun, þróunarstjórnun og rannsóknavinna. Á þessum árum hjá IKEA sá ég einnig um allt samstarf við háskóla víðs vegar um heiminn og ég hef kennt t.d. við skóla í Japan, Rússlandi, Kína o.fl. o.fl.“

Auk hönnunar og hönnunarstjórnunarstarfa hefur Sigga gegnt stöðu sviðsstjóra hugverkasviðs hjá Samtökum Iðnaðarins og starfað sem sérfræðingur hjá Rannís hjá Tækniþróunarsjóði. Hún hefur því innsýn í landslag hönnunar og nýsköpunar frá ýmsum hliðum.

Mikilvægi skapandi hugsunar vaxið skarpt

 „Hönnunarsviðið er í raun mjög vítt. Það spanar breidd frá list og huglægum hugmyndum yfir í stíf og stýrð framleiðsluverkefni. Enginn hluti sviðsins er merkilegri en annar og það er mikilvægt að viðurkenna að hönnun getur verið ýmiskonar og notuð á mismunandi hátt í fjölbreyttu samhengi,“ segir Sigga. „Í kjölfar gríðarlegra framfara í tækniþróun þá hefur mikilvægi skapandi hugsunar og hönnunar vaxið skarpt og þá er mikilvægt að hafa nám í boði sem passar þeirri þróun. Tilvalið var að auka framboð háskólanáms í hönnun og þá varð þessi nýja námslína til.“

Hönnun er víðfeðmt svið sem spannar allt frá listrænni nálgun yfir í tæknilega og viðskiptalega útfærslu. Hingað til hefur skort námsleið á Íslandi sem leggur sérstaka áherslu á tækni, vöruhönnun og vöruþróun byggða á traustum grunni raungreina.

Kennt er í þverfaglegu samstarfi við sálfræði, tölvunarfræði, viðskiptafræði og lögfræði innan HR, og náið samstarf við atvinnulífið tryggir hagnýta reynslu samhliða námi. Þetta er 3,5 árs nám og í lok þess þá útskrifast nemandi sem Tæknifræðingur BSc sem viðurkennt er af Verkfræðingafélagi Íslands. Námið er opið öllum með stúdentspróf en gæta þarf að því að viss raungreinagrunnur þarf að vera til staðar. Hægt er að taka sumarnámskeið til að bæta það upp ef vantar.

Miklir reynsluboltar þróuðu námið

„Ég hef kennt við óteljandi háskóla um allan heim og verið stundarkennari í HR í mörg ár í Tæknifræðideild. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af Tæknifræðinni því þar er námið byggt á verklegum sem og fræðilegum þáttum og nemendur þar mjög miklir „do-erar“. Margir nemendur eru með tæknimenntun fyrir,  ss. smiðir, rafvirkjar, vélvirkjar o.s.frv. og við hvetjum til teymisvinnu og samtals,“ segir Sigga. 

„Það er mikilvægt að við þróum nám frá eintali í samtal og þegar ég átti spjall við félaga mína við Tæknifræðideildina, og þá sérstaklega forseta deildarinnar Ásgeir Ásgeirsson, þá byrjuðum við að pússla saman þessari námslínu. Við fengum svo til liðs við okkur tvær frábærar kanónur; Þórdísi Reynisdóttur sem starfar hjá Marel og Kristínu Birnu Birnisdóttur sem starfar hjá Össuri og eru þær í fagráði námslínunnar. Báðar eru þær verkfræðimenntaðar en með sterka tengingu við hönnun og vöruþróun og hefðu viljað hafa valmöguleika um þetta nám þegar þær völdu sér menntunarleið.“

Starfsreynsla og skiptinám hluti af náminu

Starfsreynsla er hluti af náminu líkt og öll svið Tæknifræðinnar gera ráð fyrir en Sigríður segir það mikilvægt að hafa starfsnám sem veitir innsýn og reynslu í það hvernig menntun getur nýst á hagkvæman hátt og í samhengi við atvinnulífið. Einnig eykur það möguleika á tengslamyndun og skilningi á hvernig hlutirnir virka í praksís. 

Auk þess að einnig boðið upp á skiptinám við valda skóla erlendis og eru nemendur hvattir til að nýta sér það. Að sögn Siggu eykur það þekkingu, hæfni og færni á alls konar hátt. Auk þess er gert ráð fyrir að erlendis nemendur komi hingað til lands í skiptinám. 

„Nám þróast líkt og samfélagið í kringum okkur. Og það er mikilvægt að svo sé. Nemendur sem hafa haft áhuga á hönnunarnámi sem byggt er á raungreinagrunni og tengist mikið atvinnulífi og öðrum fögum ss. viðskiptum, sálfræði, tölvunarfræði o.fl. hefur ekki verið í boði hérlendis. Þá hafa nemendur oft leitað erlendis í nám. Ég tel að nemendur sem eru lausnamiðaðir og forvitnir og vilja starfa náið með atvinnulífinu, vilja fá starfsreynslu í námi og tengjast öðrum deildum líkt og ég taldi upp, munu tengja við þessa námslínu sem við erum að bjóða upp á,“ segir Sigga.

Eitthvað að lokum? 

„Að lokum finnst mér gríðarlega spennandi samstarfið við aðrar deildir innan HR, það býður upp á alls konar skemmtileg verkefni. Hönnun og nýsköpun er miklu öflugra verkfæri en stundum er talið og þau nýtast sannarlega í allskonar kringumstæðum. Ég vil efla alla hönnunarmenntun - ekki bara á háskólastigi heldur einnig á grunnskóla og leikskóla. Það geta allir virkjað hjá sér sköpunarkraftinn og hvatning í þá áttina er af hinu góða.“

Nánar um Hönnunar- og vörutæknifræði BSc í HR

Smelltu hér

Tengt efni

  • Stórstjarnan Dorte Mandrup á DesignTalks

  • Dögg Guðmundsdóttir stendur sig vel í dönskum raunveruleikaþætti um húsgagnahönnun

  • Tilnefningar til FÍT verðlaunanna 2026

Dagsetning
27. febrúar 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Háskólinn í Reykjavík
  • Sigga Heimis
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200