Uppbygging íbúða og Græna planið

Reykjavíkurborg verður með beina útsendingu um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík með áherslu á framkvæmdir sem eru í gangi og hvað er framundan föstudaginn 30. október. Útsendingin hefst kl. 9.00 og stendur til kl. 11.00.

Á fundinum verður græna planið einnig kynnt, en þar verður sagt frá því hvernig borgin mun sækja fram fjárfestingu með umhverfislega, fjárhagslega og félagslega sjálfbærni að leiðarljósi.

Dagskrá fundar:

  • Uppbygging íbúða í borginni og Græna planið
    Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Staða og horfur á fasteignamarkaði í Reykjavík
    Þröstur Sigurðsson frá Arcur
  • Ártúnshöfði og Elliðaárvogur: Nýr og grænn borgarhluti í mótun
    Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Arkís
  • Meiri borg, kröftugur og sjálfbær vöxtur til langrar framtíðar
    Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og
    Haraldur Sigurðsson, deildarstjóri aðalskipulags

Kynnir verður Björg Magnúsdóttir

Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Tögg

  • Arkitektúr
  • Reykjavík
  • Opin fundur
  • Steymi
  • Greinar