Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Útáfuboð: Sigvaldi Thordarson arkitekt og Hvernig fangahús varð Stjórnarráðshús

4. september 2026

Tveir tengdir viðburðir á sviði arkitektúrs og byggingarsögu verða í Ásmundarsal í september – sýning á skólaverkefnum Sigvalda Thordarson arkitekts og útgáfuboð tveggja nýrra bóka.

Í Gryfjunni í Ásmundarsal hefur verið sett upp sýning á skólaverkefnum Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964). Sýningin er sett upp í tilefni útgáfu nýrrar bókar um ævi hans og verk og mun standa út september.

Fimmtudaginn 10. september kl. 17–19 efnir Hið íslenska bókmenntafélag til útgáfuboðs í Ásmundarsal, Freyjugötu 41, þar sem útkomu tveggja nýrra bóka um íslenska byggingarlist og byggingarsögu verður fagnað.

Sigvaldi Thordarson arkitekt er eftir Albínu Thordarson og Pétur H. Ármannsson. Í bókinni rekur Albína sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana, en Pétur fjallar meðal annars um náms- og mótunarár Sigvalda. Bókin hefur að geyma fjölda áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt ítarlegri skrá yfir verk arkitektsins.

Hin bókin, Hvernig fangahús varð Stjórnarráðshús eftir Þorstein Gunnarsson, fjallar um sögu Stjórnarráðshússins og þá umbreytingu sem byggingin hefur gengið í gegnum, frá fangahúsi til aðseturs stjórnvalda.

Aðgangur að útgáfuboðinu er öllum opinn. Gaman að segja frá því að höfundarnir Albína Thordarson, Pétur H. Ármannsson og Þorsteinn Gunnarsson eru öll heiðursfélagar Arkitektafélags Íslands.

Arkitektafélagið hvetur félagsfólk og aðra áhugasama um arkitektúr og byggingarsögu til að líta við.

Tengt efni

  • Opnunarhátíð  vegna bókar Trausta Valssonar: „List og hönnun”
  • Þér er boðið í útgáfuhóp- ,,Á elleftu stundu"

Dagsetning
4. september 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200