Valdís Steinarsdóttir á Design Diplomacy á Helsinki Design Week
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/01b18286-27af-4f7e-af4e-2f376b9d1005_valdishelsinkidesignweek.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,2308,1603&w=1620&h=1125)
Þessa dagana stendur yfir Helsinki Design Week og tók íslenski hönnuðurinn Valdís Steinsdóttir þátt í Design Diplomacy viðburði á vegum íslenska sendiráðsins í Helsinki.
Design Diplomacy viðburðurinn í Helsinki er sama sniði og á HönnunarMars þar sem erlendir sendiherrar bjóða hönnuðum frá sínum heimalöndum til opins samtals við finnska kollega í samstarfi við Helsinki Design Week.
Sem fyrr segir var Valdís Steinarsdóttir, hönnuður fulltrúi Íslands og átti skemmtilegt og áhugavert samtal við kollega sinn frá Finnlandi, Tuula Pöyhönen á heimili sendiherrans Íslands í Helsinki, Árna Þórs Sigurðssonar, í morgun, 6. september. Fullt var á viðburðinn sem byrjaði á morgunverði sem var sér hannaður af Lars Sonck og Onni Törnquist. Í tengslum við Design Diplomacy er svo sýning á Helsinki Design Week frá fulltrúm landanna sem taka þátt.
Valdís er hönnuður sem fókuserar á tilraunir með efni með það að markmiði að finna lausnir við umhverfis- og samfélagslegum málefnum. Á HönnunarMars 2019 kom hún að þremur sýningum, Bioplastic Skin, Kynjakokteil og hrossahúð breytt í litríka hversdagshluti.
Design Diplomacy verður fjórða árið í röð á HönnunarMars 2020 en hugmyndin er í eigu hönnunarvikunnar í Helsinki þar sem sérsniðin spurningarspjöld er notuð til að hefja hönnunarmiðaða umræðu.
Meira um Helsinki Design Week hér.
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/813dde19-034a-45bf-8af8-4092125b7964_b37caa79b9c086.jpg?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/9fbef38b-e999-4ce1-85fc-baadf46d5b0b_9dff3912cd19c88c.jpg?auto=compress,format)