Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

Samkeppnir

    Samkeppni er þegar tveimur aðilum eða fleiri er boðið að útbúa tillögu um lausn á sama verkefni, tímafrestur og forsendur eru skilgreindar í keppnislýsingu og mat á tillögum fer fram eftir ákveðnum reglum. Samkeppni getur ýmist verið opin öllum sem vilja taka þátt í henni eða lokuð, þ.e. þátttaka verið takmörkuð við boðskeppni, forvalskeppni eða val ákveðinna aðila eða fagstétta. Þegar útvöldum aðilum er sérstaklega boðið að taka þátt (boðskeppni) er val á þeim gert í samráði FÍLA og útbjóðanda. Einnig eru val á aðilum sem taka þátt í forvali gert i samráði FÍLA og útbjóðanda eftir fyrirfram ákveðnum forvalskröfum. Útbjóðandi er sá sem efnir til samkeppni og er ábyrgur fyrir framkvæmd hennar.

    Grunnform samkeppna er tvenns konar, annars vegar hugmyndasamkeppni og hins vegar framkvæmdasamkeppni. Samkeppnir geta farið fram í einu eða tveimur þrepum.

    Hugmyndasamkeppni

    Þegar haldin er hugmyndasamkeppni er tilgangurinn sá að kalla fram hugmyndir, úrlausnir á skipulagi og/eða hönnun einstakra svæða. Hugmyndasamkeppni geta ýmist verið lokaðar eða opnar fagaðilum, nemum og almenningi. Að jafnaði er útbjóðandi ekki skyldugur til áframhaldandi vinnu með verðlaunatillögu.

    Framkvæmdasamkeppni

    Tilgangur framkvæmdasamkeppni er að fá fram hugmyndir og tillögur til framkvæmda sem vinningshafi fær til nánari útfærslu og eru niðurstöður dómnefndar að jafnaði bindandi. Framkvæmdasamkeppnir geta verið opnar eða lokaðar, í einu eða tveimur þrepum.

    Tveggja þrepa samkeppni

    Eiga sérstaklega við þegar um stærri og flóknari verkefni er að ræða og geta verið hugmyndasamkeppnir eða framkvæmdasamkeppnir. Í fyrra þrepi eru lagðar fram hugmyndir í stórum dráttum með einföldum skýringarmyndum, uppdráttum og teikningum sem sýna markmið og helstu hugmyndir þátttakenda. Fyrra þrepið getur verið opið eða lokað eftir því sem við á. Seinna þrepið er lokuð samkeppni milli þeirra sem stóðu að bestu tillögum fyrra þrepsins þar sem þeim gefst kostur á nánari úrvinnslu á tillögum sínum.

    • Samkeppnisreglur FÍLA 4. útgáfa

      Samþykkt á aðalfundi 10.maí 2022

    Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    Gróska, Bjargargata 1
    102 Reykjavik

    info@honnunarmidstod.is

    • Facebook
    • Instagram
    • Vimeo
    • Pinterest
    © Hönnunarmiðstöð 2026.

    Sími 771 2200